Yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar verður látinn fara Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2018 10:18 Hans-Georg Maassen hefur stýrt leyniþjónustunni frá árinu 2012. Vísir/EPA
Hans-Georg Maassen, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar Bundesamt für Verfassungsschutz (BFV), verður gert að víkja úr embætti samkvæmt heimildum Die Welt. Talið er að Angela Merkel Þýskalandskanslari hafi gert upp hug sinn og örlög Maassen ráðist um helgina, en deilurnar um Maassen hafa skapað talsverðan núning í stjórnarsamstarfi Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna síðustu dagana. Maassen var mikið gagnrýndur eftir að hann dró opinberlega í efa hvort að myndband, sem sýndi árásir manna á innflytjendur í borginni Chemnitz, væri í raun ósvikið. Árásirnar áttu sér stað í tengslum við mótmælaaðgerðir í borginni á dögunum. Maassen er jafnframt sakaður um að hafa komið leynilegum upplýsingum í hendur fulltrúa hægriöfgaflokksins Alternativ für Deutschland (AFD). Hann hefur þó staðfastlega neitað slíku.Hafa farið fram á afsögn Maassen Jafnaðarmannaflokkurinn, sem á aðild að stjórn Merkel, hefur farið fram á afsögn Maassen, en innanríkisráðherrann Horst Seehofer hefur hins vegar komið honum til varnar. Málefni leyniþjónustunnar heyra undir innanríkisráðuneyti landsins. Boðað hefur verið til neyðarfundar á morgun vegna stöðunnar sem upp er komin en samkvæmt Die Welt virðist ljóst að niðurstaðan verði sú að Maassen verði látinn fara. Der Spiegel greindi frá því um helgina að Maassen vilji stórauka mannafla BFV, eða úr 2.100 manns í um sex þúsund.
Þýskaland Mest lesið Veðurvaktin: Biðja fólk að halda sig heima í kvöld Veður Karlmaður lést í Bláa lóninu Innlent Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Innlent Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Innlent Snjókoman rétt að byrja Innlent Eldur í blokk við Ljósheima Innlent Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Innlent Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Innlent Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Fleiri fréttir Stærsti fellibylur í sögu Jamaíka Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Ísraelsher gerir árás á Gasa Andstæðingar olíuleitar Norðmanna hrósa sigri þrátt fyrir tap Skipar hernum að gera árásir á Gasa Áfrýjar sakfellingu í þagnargreiðslumálinu Sakar Evrópu um stríðsæsingu Musk í samkeppni við Wikipedia Búast við hamförum vegna Melissu Van de Velde bannað að ferðast til Ástralíu til að keppa á heimsmeistaramótinu Segja Rússa elta almenna borgara með drónum Játar að hafa myrt Shinzo Abe Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Sjá meira