Framtíðarhorfur Eyrarsunds sem eins atvinnusvæðis góðar þó að blikur séu á lofti Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2018 20:00
Átján eru nú liðin frá því að Eyrarsundsbrúin var opnuð og fara þúsundir yfir brúna á degi hverjum til að komast í og úr vinnu. Hagfræðingur við Kaupmannahafnarháskóla segir að framtíðarhorfur Eyrarsundssvæðisins sem eins atvinnusvæðis séu góðar þó að vissulega séu blikur á lofti. Áhugamenn um norræna sakamálaþætti þekkja vel til Eyrarsundsbrúarinnar sem er tæpir átta kílómetrar að lengd milli Malmö til Piparhólmsins, manngerðrar eyjar Danmerkurmegin. Smíði Brúarinnar hófst árið 1995 og var hún opnuð fyrir almennri umferð 1. júlí árið 2000. Það sem er ári hafa um 21 þúsund farartæki farið yfir brúna á degi hverjum.Sandra Forsén hjá Öresund Direkt.Vísir/Egill AðalsteinssonHægði á fjölguninni eftir 2008 Sandra Forsén, skrifstofustjóri hjá Öresund Direkt, dansk-sænskri upplýsingaskrifstofu sem vinnur að því að gera Eyrarsundssvæðið að einu atvinnusvæði, segir að frá opnun brúarinnar hafi stöðugt fjölgað í hópi þeirra sem búa í einu landinu og starfi í hinu. Þó hafi eitthvað hægt á fjölguninni eftir fjármálakrísuna 2008 áður en tók að fjölga á ný.En eru það margir sem búa í annað hvort Svíþjóð eða Danmörku og vinna í hinu? „Já vissulega. Það eru um 18.500 sem búa í öðru landinu og vinna í hinu.“ Forsén segir að eftir að landamæraeftirlit var tekið upp á Eyrarsundsbrúnni í kjölfar straums flóttamanna til Svíþjóðar 2015 hafi eitthvað dregið úr áhuga einstaklinga að ferðast daglega yfir brúna til og frá vinnu. Þó sé tekið eftir þróunin hafi nú aftur snúist við.Eyrarsundsbrúin opnaði árið 2000.Vísir/Egill AðalsteinssonRannsakar efnahagsleg áhrif BrúarinnarBjörn Þór Arnarson, hagfræðingur við Kaupmannahafnarskóla vinnur nú ásamt öðrum að rannsókn á efnahagslegum áhrifum Brúarinnar á Eyrarsundssvæðið. Hann býr með fjölskyldu sinni í Svíþjóð og er því sjálfur einn þeirra sem ferðast yfir Brúna til vinnu. Hann segir framtíðarhorfur svæðisins vera nokkuð góðar þó að vissulega séu blikur á lofti. „Við höfum séð alþjóðafyrirtæki verið að auka starfsemi sína hérna í Malmö og nágrenni. Hins vegar eru ákveðin hættumerki, sérstaklega tengdu landamæraeftirliti og skilríkjaeftirliti sem tekið var upp hérna eftir að straumur flóttamanna kom frá Suður-Evrópu. Það er enn til staðar að vissu leyti og er viss ógn fyrir áframhaldandi vöxt svæðisins þegar fram í sækir.“Mögulega önnur tenging Til skoðunar hefur verið að leggja göng undir Eyrarsundið fyrir neðanjarðarlest milli Kaupmannahöfn og Malmö sem myndi þá enn auðvelda samgöngur milli landanna. Svíar gengu til kosninga á sunnudaginn var og bar málið á góma í kosningabaráttunni, sér í lagi í suðurhluta landsins og þá í tengslum við sveitastjórnarkosningar. Flestir flokkanna sögðust jákvæðir í garð slíkrar tengingar, en enn er beðið eftir niðurstöðu þarfagreiningar samgönguyfirvalda beggja vegna sundsins.
Norðurlönd Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira