Þórey Rósa: Næstum því leikur hjá okkur Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Schenkerhöllinni skrifar 27. september 2018 21:29 Þórey Rósa Stefánsdóttir. Vísir/Valli
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú mörk í eins marks tapi Íslands fyrir Svíum í vináttulandsleik í kvöld. Fyrirliðinn var svekkt að hafa ekki náð að vinna leikinn. „Þetta var svolítill næstum því leikur hjá okkur. En ég er ánægð með að við náum að koma til baka. Við byrjum seinni hálfleikinn ekki nógu vel en náum samt að koma til baka aftur og eiga fullan séns í lokin,“ sagði Þórey Rósa í leikslok í Hafnarfirði. Svíar unnu 25-26 sigur. „En því miður, þá tókst það ekki alveg.“ Íslenska liðið spilaði mjög vel og var tveimur mörkum yfir í hálfleik. Um miðjan seinni hálfleikinn höfðu Svíarnir komist fjórum mörkum yfir og leit út fyrir að þær sænsku myndu rúlla yfir íslensku stelpurnar en íslenska liðið sýndi mikinn karakter að vinna sig til baka inn í leikinn. „Virkilega ánægð með stelpurnar að við náum að þétta vörnina aftur og keyra upp hraðann aftur. Það dugði því miður ekki til í dag en sem betur fer eigum við einn leik í viðbót á móti þeim og ég hlakka mikið til að mæta þeim aftur á laugardaginn.“ „Ég er ekki nógu sátt við þetta miðað við hvernig fyrri hálfleikurinn spilaðist. Við hefðum getað verið búnar að skora fjögur í viðbót, við vorum klaufar í fyrri hálfleik.“ „Auðvitað er ég sátt við leikinn í heild en ég hefði viljað vinna þetta í dag.“ Það er þó hellingur af jákvæðum punktum sem má taka út úr leiknum. „Hellingur. Við spilum mjög góða vörn og náum að keyra upp hraðann, sérstaklega í fyrri hálfleik. Áræðnar í sókn, en klaufar inn á milli.“ Það stendur þó greinilega ekkert annað til boða í huga fyrirliðans en að vinna þegar liðin mætast öðru sinni á laugardag. „Það þýðir ekkert annað,“ sagði Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Handbolti Tengdar fréttir Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 25-26 │Naumt tap fyrir Svíum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki fyrir Svíum í vináttulandsleik í Hafnarfirði í dag. Svíar unnu 25-26 sigur eftir að íslenska liðið leiddi leikinn í hálfleik. 27. september 2018 21:00 Mest lesið Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra Sport Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Körfubolti Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Körfubolti „Erfið og flókin staða“ Enski boltinn Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fótbolti Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Enski boltinn Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun Enski boltinn „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Handbolti „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Íslenski boltinn Newcastle býður í Sesko Enski boltinn Fleiri fréttir „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Sjá meira
Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 25-26 │Naumt tap fyrir Svíum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki fyrir Svíum í vináttulandsleik í Hafnarfirði í dag. Svíar unnu 25-26 sigur eftir að íslenska liðið leiddi leikinn í hálfleik. 27. september 2018 21:00