Aron ráðinn til FH Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júlí 2025 10:43 Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, innsiglar samninginn við Aron með handabandi. Mynd/FH Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn til starfa hjá handknattleiksdeild uppeldisfélags hans, FH. Aron verður sérlegur faglegur ráðgjafi við deildina.
FH greindi frá á samfélagsmiðlum í morgun. Samkvæmt yfirlýsingu FH mun Aron koma að yngri flokka starfi sem og afreksstarfi hjá FH-ingum og vinna að þeim með stjórn og þjálfurum handknattleiksdeildar félagsins. Aron hætti handboltaiðkun sem leikmaður í vor er hann vann ungverska meistaratitilinn með Veszprem í Ungverjalandi. Aron kom heim til FH fyrir tímabilið 2023-24 og varð Íslandsmeistari með uppeldisfélaginu. Hann fór svo óvænt á miðju síðasta tímabili frá FH til Veszprem og lauk ferli sínum þar. Aron er sigursælasti handboltamaður Íslandssögunnar en hann vann 13 landstitla á sínum ferli þar sem hann lék í Danmörku, Þýskalandi, Spáni og Ungverjalandi. „Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar FH leitaði til mín um að koma inn í starfið hjá félaginu. Eins og allir vita þá er ég gríðarlegur FH-ingur og hef miklar skoðanir á því hvernig hægt sé að gera hlutina. Ég hlakka til að vinna með ungum og upprennandi FH-ingum og deila þekkingu minni. Ég vona að sú reynsla sem ég bý yfir muni hjálpa félaginu að eflast enn frekar,“ er haft eftir Aroni í yfirlýsingu FH. Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar félagsins, segir um hvalreka að ræða fyrir FH-inga. „Við erum einstaklega stolt af því að fá Aron inn í starfið hjá FH. Hann hefur mikla ástríðu fyrir félaginu og býr yfir einstakri reynslu og þekkingu sem mun hjálpa félaginu á víðum grunni. Aron mun hjálpa FH að taka næstu skref í skipulagi starfsins í heild og gera þannig gott starf ennþá betra.“ Yfirlýsinguna í heild má sjá að neðan.
FH Olís-deild karla Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira