„Túrtappaskattur“ felldur niður í Ástralíu Samúel Karl Ólason skrifar 3. október 2018 11:30 Í um átján ár hefur sérstakur tíu prósenta skattur verið lagður á túrtappa, dömubindi og aðrar hreinlætisvörur þar sem þau eru ekki skilgreind sem nauðsynlegar vörur. Vísir/Getty
Yfirvöld Ástralíu hafa ákveðið að fella niður skatta á tíðavörur kvenna eftir áralanga herferð gegn skattinum. Í um átján ár hefur sérstakur tíu prósenta skattur verið lagður á túrtappa, dömubindi og aðrar hreinlætisvörur þar sem þau eru ekki skilgreind sem nauðsynlegar vörur. Allan þann tíma hafa konur barist gegn skattinum og bent á að aðrar vörur eins og smokkar, sólarvörn og jafnvel Viagra séu skilgreindar sem nauðsynlegar og því nái skatturinn ekki yfir þær. Konur hafa ætíð sagt skattinn ósanngjarnan. Breytingarnar munu kosta ríkið rúma tvo milljarða króna á ári, um 30 milljónir ástralska dala. Samkvæmt ABC í Ástralíu hefur ríkisstjórn landsins þó ekki áhyggjur af því. Áætlað er að einhverjir mánuðir séu í að breytingarnar taka gildi en ekki er búið að ákveða nákvæmlega hvaða vörur verða skilgreindar sem nauðsynlegar og verður það gert í samráði við yfirvöld stakra ríkja Ástralíu.Konur hafa fagnað ákvörðuninni vel. Rochelle Courtenay, stofnandi samtaka sem börðust gegn túrtappaskattinum og söfnuðu hundrað þúsund undirskriftum gegn honum fyrr á þessu ári sagði málið ekki vera til komið vegna peninga. Þetta væri spurning um jafnrétti.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Fleiri fréttir Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Sjá meira