Lífið

Bannar dóttur sinni að horfa á Öskubusku og Litlu hafmeyjuna

Birgir Olgeirsson skrifar
Leikkonan Keira Knightley.
Leikkonan Keira Knightley. Vísir/Getty
Breska leikkonan Keira Knightley bannar þriggja ára dóttur sinni að horfa á kvikmyndir frá Disney ef hún er ósátt við þá mynd sem er dregin upp af konum í þeim myndum.

Greint er frá þessu á vef BBC en þar segir að Öskubuska og Litla hafmeyjan séu á meðal mynda sem eru á bannlista leikkonunnar. Hún sagði þetta í spjallþætti Ellen DeGeneres. Þar sagði hún til að mynda Öskubusku, eins og hún var túlkuð á sjötta áratug síðustu aldar, bíða eftir einhverjum auðugum manni sem á að koma henni til bjarga.

„Ekki bíða! Bjargaðu sjálfri þér. Augljóslega.“

Leikkonan bætti þó við að hún elskaði Litlu hafmeyjuna og því reyndist það henni erfitt að banna þriggja ára dóttur sinni að horfa á hana. „Lögin eru frábær, en ekki gefa röddina þína eftir fyrir karlmann. Halló!“

Sjálf hefur Knightley leikið í Disney-myndum, þar á með Pirates of the Caribbean, en hún sagði að ekki væru allar myndir frá þessu fyrirtæki slæmar.

Leitin að Dóru, eða Finding Dory, er í miklu uppáhaldi sem og Frozen og Mona.

Knightley er á ferð og flugi þessar mundir til að kynna nýjustu mynd sína um Hnotubrjótinn sem Disney framleiðir.

BBC segir Knightley ekki fyrstu leikkonuna til að gagnrýna Disney vegna þess hvernig konur birtast í myndum fyrirtækisins.

Kristen Bell, sem talsetti eina af aðalpersónum Frozen, sagði Mjallhvíti senda börnum slæm skilaboð um samþykki.

Segist hún hafa rætt við dætur sínar og spurt þær hvort þeim finnist ekki skrýtið að Mjallhvít hafi ekki spurt nornina hvers vegna hún þurfti að borða eplið eða hvaðan nornin fékk eplið? Þá spurði hún líka dætur sínar hvort þeim þætti það ekki skrýtið að prinsinn kyssi Mjallhvíti án hennar leyfis?

„Þú mátt nefnilega ekki kyssa einhvern ef hann er sofandi,“ sagðist Bell hafa ítrekað fyrir dætrum sínum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.