Attestor selur og Eaton Vance kaupir í Arion Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. október 2018 09:00 Attestor hefur selt hátt í 4 prósenta hlut frá því í vor. Fréttablaðið/Eyþór
Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital seldi um 0,3 prósenta eignarhlut í Arion banka í síðasta mánuði og fór í lok mánaðarins með 8,58 prósenta hlut í bankanum. Sjóðurinn hefur selt hátt í 0,9 prósent af hlutafé bankans eftir að bankinn var skráður á hlutabréfamarkað í júní. Attestor Capital hefur haldið áfram að minnka hlut sinn það sem af er þessum mánuði, samkvæmt heimildum Markaðarins. Sjóðir á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management juku lítillega við hlut sinn í Arion banka í september og áttu í lok mánaðarins samanlagt 1,78 prósenta hlut, samkvæmt lista yfir stærstu hluthafa bankans. Til samanburðar nam samanlagður hlutur sjóðanna 1,64 prósentum í lok ágúst og um 1,2 prósentum í kjölfar skráningar bankans. Attestor Capital hefur unnið markvisst að því að minnka hlut sinn í bankanum á undanförnum mánuðum en vogunarsjóðurinn hefur selt hátt í 3,9 prósent af hlutafé bankans frá því í vor. Hlutabréfaverð Arion banka nam 81,2 krónum á hlut við lokun markaða í gær og var um 8,3 prósentum hærra en í útboði bankans þegar Kaupþing og Attestor seldu um 29 prósenta hlut á genginu 75 fyrir samtals um 39 milljarða króna.
Birtist í Fréttablaðinu Salan á Arion banka Mest lesið Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Raforka til gagnavera snarminnkað Viðskipti innlent Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Sjá meira