Indónesíska lágfargjaldafélagið Lion Air rekur ellefu vélar af tegundinni Boeing 737 Max 8. Vél af sömu tegund á vegum flugfélagsins hrapaði í sjóinn fyrir undan ströndum Jövu í nótt. Flugfélagið hefur ákveðið að kyrrsetja ekki aðrar vélar félagsins. Stjórnvöld í Ástralíu hefur varað almenning við því að fljúga með Lion Air þar til niðurstaða rannsóknar á slysinu kemur út.
Icelandair tók í notkun flugvélar sömu tegundar fyrr á árinu auk fjölda annarra flugfélaga. Of snemmt er að draga ályktanir um öryggi vélanna en það þykir með furðulegra móti að glæný vél lendi í slysi sem þessu. Vélin var afhent Lion Air 15 ágúst síðastliðinn og hafði einungis flogið samanlagt í um 800 klukkustundir.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu til Icelandair um hvort félagið ætli að bregðast við með einhverjum hætti eftir ófarirnar í Indónesíu kemur fram að í tilvikum sem þessum fylgist flugvélaframleiðandinn, Boeing, með rannsókn og upplýsir flugfélög um gang mála.
Edward Siraito, forstjóri Lion Air, sagði á blaðamannafundi í dag að vélin hafði áður glímt við „tæknilegt vandamál“ en að það hafi verið lagað. Hún hefði aldrei getað fengið að fljúga hefði einhver orðið var við bilun.
Björgunaraðgerðir halda áfram í nótt en björgunaraðilar eru ekki bjartsýnir á að finna nokkurn á lífi. „Ég geri ráð fyrir því að enginn hafi komist lífs af þar sem við höfum einungis haft upp á líkamspörtum,“ sagði Bambang Suryo Aji, framkvæmdastjóri björgunaraðgerða, á blaðamannafundi í morgun.
Viðbragðsaðilar hafa sent 21 líkpoka með líkamsleifum fólks til greiningar í Jakarta.
Ætla ekki að kyrrsetja vélar af sömu tegund og sú sem hrapaði
Tengdar fréttir

Hafa fundið brak og ökuskírteini en ekki flugvélina
Flugvél Lion Air í Indónesíu brotlenti í sjóinn skömmu eftir flugtak frá Jakarta í nótt.

Óttast um afdrif 189 farþega Lion Air
Flugmálayfirvöld staðfesta að vélin sé horfin og að 189 hafi verið um borð

Vélin sem hrapaði var glæný
Talið er afar ólíklegt að einhver þeirra 189 sem um borð voru í flugvél Lion Air sem brotlenti í sjóinn skömmu eftir flugtak frá Jakarta í Indónesíu í nótt. Flugvélin sem hrapaði var glæný.

Icelandair tók í notkun nýja flugvél í dag
Fjölmenni tók á móti vélinni á Reykjavíkurflugvelli í dag.