Lífið

Myglað hús með ónýtu þaki og „mjög miklum músagangi“ falt á níu milljónir

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Húsið stendur á leigulóð sem telur 900 fermetra.
Húsið stendur á leigulóð sem telur 900 fermetra.
Íbúðalánasjóður hefur til sölu fjögurra herbergja einbýlishús að Búðum í Grindavík, sem óhætt er að segja að sé að hruni komið. Uppsett verð á húsinu er níu milljónir en það státar af „mikilli myglu í herbergjum“, „mjög miklum músagangi“ og ónýtu gólfefni, að því er fram kemur í auglýsingu á fasteignavef Vísis.

Húsið er byggt árið 1928 og stendur á 900 fermetra lóð en ekki liggur þó fyrir hversu stórt það er. Eigninni er lýst ítarlega í áðurnefndri fasteignaauglýsingu og ljóst er að nýir eigendur þurfa að leggja nokkuð í endurbætur á húsinu, hyggi þeir á búsetu þar.

Í auglýsingunni kemur m.a. fram að mygla sé í veggjum hússins og þá er mörgum hlutum þess lýst sem „lélegum“. Í húsinu má til að mynda finna lélegan fataskáp, mjög lélega eldhúsinnréttingu, lélegan viðarstiga, lélega innveggi og lélega gluggakarma. Þá er einnig „mikil mygla í herbergjum“ og ástand eignarinnar almennt sagt „mjög slæmt“.

„Lagnir eru ónytar, endurnýja þarf alla ofna í húsinu. Loftaefni þarfnast endurnýjunar . Baðherbergi þarfnast mikils viðhalds/endurnýjunar. Eldhús þarfnast mikils viðhalds. Öll blöndunartæki eru biluð. Allar innréttingar þarf að endurnýja. Gólfefni eru ónýt. Gólfið er mishæðótt, mikill gólfhalli. Viðarstigi milli hæða er lélegur. Innveggir eru mjög lélegu ástandi. Mjög mikill músagangur er í eigninni,“ segir í auglýsingu.

Þá leka þak, gluggar og veggir hússins auk þess sem ekki er þekkt hvernig fráveitu er fyrirkomið, eða hvort rotþró sé til staðar.

„ÍLS mælir sérstaklega að eignin sé skoðuð með fagmönnum og að lagnir séu myndaðar. Ekki er vitað um ástand heimilistækja,“ segir að endingu í fasteignaauglýsingunni. Myndir af eigninni má skoða hér að neðan.

Yfirfara þarf ofna og ofnalagnir, að því er segir í fasteignaauglýsingunni.
Viðarstigi milli hæða er lélegur.
Ef nýta á húsið til búsetu þarf eignin mjög mikla endurgerð eða endurbyggingu, að því er segir í fasteignaauglýsingu.
Útidyrahurð hússins er léleg.
Myglu og músagangs gætir í eigninni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.