Leicester liðið mun skipta um búning í hálfleik á laugardaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2018 08:30 Leikurinn á laugardaginn verður helgaður minningu Vichai Srivaddhanaprabha. Vísir/Getty
Leicester City hefur nú gefið út hvernig hlutirnir verða í kringum leikinn á móti Burnley á laugardaginn en það verður fyrsti heimaleikur félagsins síðan að eigandi þess, Vichai Srivaddhanaprabha, lést í þyrluslysi fyrir utan King Power leikvanginn. Það verður tveggja mínútna þögn fyrir leikinn auk þess að sérstakt minningarmynd um Vichai Srivaddhanaprabha verður sýnt fimmtán mínútum fyrir leik. Það er uppselt á leikinn en Leicester City biðlar til áhorfenda að vera allir komnir í sætin sín 25 mínútum fyrir leik.Leicester City fans will be invited to pay tribute to the Club’s late Chairman, Vichai Srivaddhanaprabha, during Saturday’s Premier League game at King Power Stadium. — Leicester City (@LCFC) November 7, 2018Leikmenn Leicester City munu síðan ekki spila í sömu búningum í fyrri og seinni hálfleik. Í fyrri hálfleik munu leikmennirnir spila í búningum merktum minningarorðum um Vichai Srivaddhanaprabha en í þeim seinni munu leikmennirnir spila með barmmerki til minningar um fallna hermenn en minningardagur hermanna er 11. nóvember. Þyrluslysið varð eftir síðasta heimaleik Leicester 27. október síðastliðinn og var Vichai Srivaddhanaprabha einn af fimm sem létust þegar þyrla hans hrapaði. Allir leikmenn Leicester og Burnley mun vera með sorgarbönd í leiknum og allir stuðningsmenn fá einnig minningarmerki og sérstaka leikskrá með minningarefni um Vichai Srivaddhanaprabha.Leicester City would like to invite supporters to be part of a relocation of tributes to Chairman Vichai Srivaddhanaprabha at King Power Stadium on Friday. — Leicester City (@LCFC) November 7, 2018Leicester mun setja upp sérstakan stað nálægt slysstaðnum þar sem stuðningsfólk og aðrir geta skilið eftir hluti til að minnast Vichai Srivaddhanaprabha sem var gríðarlega vinsæll í Leicester. Áður en að leiknum kemur þarf að færa allt blómahafið frá innganginum af vellinum sem mun verða gert á morgun. Félagið hefur einnig boðað það að á laugardaginn verður sagt frá því hvernig Leciester City ætlar að minnast Vichai Srivaddhanaprabha í framtíðinni.pic.twitter.com/vQPXadTF8h — Leicester City (@LCFC) November 6, 2018
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Körfubolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira