Þingmenn mættu prúðbúnir á Bessastaði í árlega þingmannaveislu forseta Íslands fyrr í kvöld. Veislan er vanalega haldin á fullveldisdeiginum, 1. desember, en var flýtt að þessu sinni vegna annarra hátíðahalda í tengslum við 100 ára fullveldisafmælisins.
Þingmenn söfnuðust margir saman í fordrykk í þingskálanum á Alþingi ásamt fyrrverandi þingmönnum og mökum. Þvínæst héldu núverandi þingmenn ásamt mökum í rútu til Bessastaða og má telja líklegt að fréttir af Klausturupptökunum svokölluðu hafi eitthvað verið til umræðu.
Að neðan má sjá viðtöl fréttamanns Stöðvar 2 við nokkra þingmenn á leið upp í rútuna.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari fréttastofu, var á staðnum þegar þingmenn mættu ásamt mökum á Bessastaði.
Einhverjir þingmenn voru fjarverandi, meðal annars Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks, Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna.
Innlent