KR vann KR | ÍR örugglega áfram í 8-liða úrslit Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 15. desember 2018 19:54 A-lið KR vann B-lið félagsins í kvöld vísir/bára
Íslandsmeistarar KR unnu B-lið sitt í 16-liða úrslitum Geysisbikar karla í kvöld. Þá komst ÍR örugglega áfram eftir stórsigur á 1. deildarliði ÍA. KR mætti KR í Vesturbænum en A og B-lið félagsins drógust saman í 16-liða úrslitum. Leikurinn reyndist auðveldur fyrir A-liðið en liðið dreifði spilatímanum vel á milli manna í leiknum og fengu ungir strákar að spreyta sig. Íslandsmeistararnir slátruðu hreinlega B-liði sínu 129-54 og er því örugglega komið í 8-liða úrslitin. Vilhjálmur Kári Jensson og Orri Hilmarsson urðu stigahæstir í A-liðinu með 26 stig hvor. Hjá B-liðinu var það Skarphéðinn Freyr Ingason sem var stigahæstur með 15 stig. Fyrstu deildarlið ÍA heimsótti úrvalsdeildarlið ÍR og reyndust ÍR-ingar of sterkir fyrir Skagamenn. ÍR leiddi eftir fyrsta leikhluta með sex stigum en Skagamenn komu öflugir inn í annan leikhluta og og unnu hann með átta stigum, og leiddu því í hálfleik með tveimur stigum, 37-35. Allt annað ÍR-lið kom til leiks í seinni hálfleik og sýndu þeir andstæðingum sínum af hverju þeir væru í efstu deild. Unnu ÍR-ingar þriðja leikhlutann með tuttugu stigum og var eftirleikurinn auðveldur fyrir Breiðhyltinga. Lokatölur urðu 104-73 og verða ÍR því í pottinum er dregið verður í 8-liða úrslitin ásamt KR og Grindavík. Skúli Kristjánsson var stigahæstur í liði ÍR með 19 stig en Hjalti Ásberg Þorleifsson var stigahæstur hjá Skagamönnum með 17 stig. Skúli Kristjánsson var stigahæstur í liði ÍR með 19 stig en Hjalti Ásberg Þorleifsson var stigahæstur hjá Skagamönnum með 17 stig.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira