Fyrsti Íslendingurinn sem nær 40 stiga þrennu í úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2018 12:00 Elvar Már Friðriksson vísir/daníel
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson náði sögulegri þrennu í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gær þegar hann fór á kostum í sigri á Breiðabliki. Elvar Már skoraði 40 stig í leiknum en hann var einnig með 11 fráköst og 12 stoðsendingar. Elvar náði þrennunni á undan því að hann náði fertugasta stigi sínu en með því stendur hann einn á palli meðal íslenskra körfuboltamanna. Elvar er fyrsti Íslendingurinn í úrvalsdeildinni sem nær að skora 40 stig á sama tíma og hann nær þrennu. Elvar var þó dálítið frá metinu en það á Bandaríkjamaðurinn Warren Peebles. Peebles skoraði 58 stig fyrir Val í leik á móti KR árið 1999 en að auki var hann með 10 fráköst og 12 stoðsendingar. Elvar er í fimmta sætinu á þessum lista en Brenton Birmingham var ekki kominn með íslenskt ríkisfang þegar hann skoraði 43 stig í þrennuleik með Grindavík á móti Snæfelli árið 2000. Íslenska stigametið í þrennu átti Eysteinn Bjarni Ævarsson og var það orðið næstum því þriggja ára gamalt. Eysteinn skoraði 29 stig í þrennu sini með Hetti á móti Þór 6. mars 2016. Hér fyrir neðan má sjá þessi tvö met yfir flest skoruð stig í þrennuleik.Flest stig í þrennu í úrvalsdeild karla í körfubolta: 58 stig - Warren Peebles, Val á móti KR 19.2.1999 (10 fráköst, 12 stoðsendingar) 43 stig - Brenton Birmingham, Grindavík á móti Snæfelli 3.3.2000 (11 fráköst, 10 stoðsendingar) 42 stig - Richard Williams, FSu á móti Snæfelli 14.2.2010 (11 fráköst, 12 stoðsendingar) 42 stig - Tobin Carberry, Hetti á móti ÍR 25.2.2016 (14 fráköst, 10 stoðsendingar)40 stig - Elvar Már Friðriksson, Njarðvík á móti Breiðabliki 13.12.2018 (11 fráköst, 12 stoðsendingar) 39 stig - Stevie Johnson, Haukum á móti Grindavík 12.12.2002 (15 fráköst, 10 stoðsendingar) 38 stig - Brenton Birmingham, Grindavík á móti Keflavík 14.12.1999 (10 fráköst, 10 stoðsendingar)Íslenskir leikmenn með 25 stig og þrennu í úrvalsdeild karla í körfubolta:40 stig - Elvar Már Friðriksson, Njarðvík á móti Breiðabliki 13.12.2018 (11 fráköst, 12 stoðsendingar) 29 stig - Eysteinn Bjarni Ævarsson, Hetti á móti Þór Þorl. 6.3.2016 (10 fráköst, 10 stoðsendingar) 28 stig - Pavel Ermolinski, KR á móti Snæfelli 23.1.2014 (12 fráköst, 12 stoðsendingar) 27 stig - Eyjólfur Ásberg Halldórsson, Skallagrími á móti Snæfelli 19.2.2017 (10 fráköst, 10 stoðsendingar) 26 stig - Kári Jónsson, Haukum á móti FSu 5.2.2016 (11 fráköst, 10 stoðsendingar) 25 stig - Pavel Ermolinski, KR á móti KFÍ 15.11.2010 (18 fráköst, 12 stoðsendingar)
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Sjá meira