Eiginlega engar líkur á að Kendall Lamont spili með Val í kvöld 20. desember 2018 15:00 Kendall Lamont Anthony er búinn að vera frábær fyrir Val. vísir/bára
Valsmenn verða líklega án bandaríska leikstjórnanda síns Kendall Lamont þegar þeir heimsækja Þórsara í Þorlákshöfn í Domino´s deild karla í körfubolta í kvöld. Kendall Lamont meiddist í leiknum á móti Keflavík á dögunum og Ágúst Björgvinsson, þjálfari Valsliðsins, segir eiginlega engar líkur á því að hann geti spilað leikinn í kvöld. Kendall Lamont hefur ekkert æft með liði sínu í vikunni og Valsmenn óttast líka að með því að spila í kvöld gæti Kendall gert illt verra og verið miklu lengra frá. Kendall Lamont er bæði stigahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður Domino´s deildarinnar en hann hefur skorað 30,6 stig og gefið 9,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu sjö leikjum sínum með Hlíðarendaliðinu. Valsmenn hafa unnið þrjá leiki í röð þar sem Kendall Lamont hefur skorað meira en þrjátíu stig og munu sakna hans mikið fari svo að hann geti ekki spilað. Kendall Lamont skoraði 48 stig í sigrinum á Skallagrími, 33 stig í sigrinum á Blikum og 34 stig í sigrinum á Stjörnunni. Hann var aftur á móti aðeins með 17 stig í tapleiknum á móti Keflavík. Leikur Þórs og Vals er gríðarlega mikilvægur í baráttunni í neðri hluta deildarinnar en Þórsarar geta náð fjögurra stiga forskot á Valsmenn með sigri.
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Sjá meira