Ferguson heimsótti æfingasvæði United: „Hann hvatti okkur“ Anton Ingi Leifsson skrifar 1. janúar 2019 14:00 Ferguson og Solskjær á góðri stundu. vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær, bráðabirgðastjóri Manchester United, segir að hann haldi góðum tengslum við goðsögn félagsins, Sir Alex Ferguson. Ferguson stýrði Solskjær er hann lék með United og Norðmaðurinn segir að þeir haldi góðu sambandi. Það góðu sambandi að Skotinn kíkti á æfingasvæði United í gær. „Ég hafði hann sem stjóra í fimmtán ár og þar hafði hann mun meiri áhrif á mig en hann hefur gert síðustu vikuna,“ sagði Solskjær á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Newcastle. „Auðvitað held ég honum upplýstum og hann heimsótti okkur á æfingasvæðið í gær. Ég held að hann hafi notið tímans á æfingasvæðinu og átti nokkur samtöl. Hann hvatti okkur.“ Undir stjórn Solskjær varð skyndileg breyting á liði United. Liðið hefur spilað sóknarbolta í síðustu þremur leikjum og skorað tólf mörk en sóknarleikurinn var oft ekki upp á marga fiska hjá Mourinho. „Ég veit ekki hvort ég er á heimavelli á þessu stigi en ég er á heimavelli hjá þessu félagi,“ sagði Solskjær spurður út í sóknarboltann og hélt áfram: „Ég eyddi fimmtán árum hérna. Mér líður vel í þessu andrúmslofti en það er líklega í þínum verkahring að segja hvort ég sé hæfur í þetta starf en ég er allavega að njóta tímans hér,“ sagði Solskjær léttur við blaðamenn. United mætir Newcastle á útivelli annað kvöld en flautað verður til leiks klukkan 20.
Fótbolti Mest lesið Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Handbolti „Núna er allt betra“ Handbolti Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Enski boltinn Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ Handbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Sjá meira
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti