Frost á fróni á fyrsta degi þorra Birgir Olgeirsson skrifar 25. janúar 2019 08:47 Norðlæg átt verður í dag. Vísir/Vilhelm
Lægð austur af landi og hæð yfir Grænlandi munu valda norðlægri átt á landinu í dag. Framan af degi er útlit fyrir norðaustan kalda á landinu, strekkingur á stöku stað. Búast má við einhverri snjókomu á austurhelmingi landsins og slyddu við ströndina, einnig snjóar aðeins vestur eftir norðurströndinni og á Vestfjörðum. Þegar líður á daginn gefur vindurinn eftir og úrkoman verður lítil eða engin. Frostið í dag verður vægt, sums staðar jafnvel frostlaust við ströndina. Á morgun er útlit fyrir norðlæga golu, en ákveðnari vindur með austurströndinni. Norðanáttinni fylgja dálítil él á Norður- og Austurlandi, en það eru horfur á léttskýjuðum degi sunnan heiða. Það kólnar í veðri og frostið verður á bilinu 2 til 12 stig. Sunnudagurinn heilsar með hægum vindi og léttskýjuðu veðri um allt land og jafnframt mjög köldu. Seinnipartinn bætir í vind vestast á landinu og það þykknar upp þegar úrkomusvæði fer að nálgast vestan úr hafi. Af ofansögðu er ljóst að næstu daga er tiltölulega rólegt vetrarveður í vændum og tilvalið til útivistar. Muna þarf þó að klæða af sér kuldann. Langtímaspár gera ráð fyrir áframhaldandi kulda í næstu viku.
Veður Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira