Mannskæð árás á herstöð í Afganistan Gunnar Reynir Valþórsson og Samúel Karl Ólason skrifa 22. janúar 2019 07:33 Árásin var gerð í héraðinu Maidan Wardak sem er rétt fyrir utan höfuðborgina Kabúl. Vísir/AP
Yfirvöld í Afganistan segja nú að fjörutíu og fimm hermenn hafi fallið í árás Talíbana á herstöð í landinu í gær. Óttast er að tala látinna sé jafnvel enn hærri og rúmlega sjötíu eru sárir. Árásin var gerð í héraðinu Maidan Wardak sem er rétt fyrir utan höfuðborgina Kabúl. Herstöðin er notuð sem þjálfunarskóli fyrir meðlimi hersveita sem eru hliðhollar stjórnvöldum. Árásin var með þeim hætti að fyrst ók sjálfsmorðssprengjumaður stórum bíl á herstöðina og sprengdi öfluga sprengju og í kjölfarið fylgdu fjórir þungvopnaðir árásarmenn. Þeir voru allir felldir á endanum.Talibönum hefur vaxið ásmegin á undanförnum árum eða allt frá því að erlendir hermenn yfirgáfu landið árið 2014. Einhverjir bandarískir hermenn eru þó eftir í Afganistan en þeir sjá nánast eingöngu um að þjálfa og aðstoða heimamenn og berjast ekki. Ashraf Ghani, forseti Afganistan, opinberaði í fyrra að frá 2015 hefðu 28 þúsund hermenn og lögregluþjónar fallið í átökum og árásum. Endi tala látinna í hundrað, eins og einhverjir miðlar ytra segja mögulegt, yrði þetta ein mannskæðasta árásin gegn leyniþjónustum landsins í tvo áratugi.
Afganistan Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Innlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs Innlent Fleiri fréttir Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Sjá meira