Eigendur Molde sögðu Solskjær að sleppa því að koma til baka Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. febrúar 2019 10:00 Solskjær hefur blásið nýju lífi í lið United vísir/getty
Forráðamenn norska úrvalsdeildarfélagsins Molde sögðu Ole Gunnar Solskjær að hann ætti ekkert að snúa til baka til Noregs heldur njóta verunnar í Manchester og tryggja sér starfið hjá United til framtíðar. Þetta hefur Sky Sports eftir Solskjær en hann hefur byrjað frábærlega sem bráðabirgðastjóri Manchester United. Solskjær hefur unnið átta af níu leikjum sínum sem stjóri United og hefur enn ekki tapað leik. United sækir Leicester heim í dag. „Þegar ég hringdi í eigandann og sagði honum frá því að United hafi hringt í mig þá sagði hann: „Farðu og njóttu þess, og endilega ekki koma til baka“,“ sagði Solskjær við Sky Sports. „Báðir eigendurnir óskuðu mér alls hins besta því þeir vissu að þetta er eitthvað sem mig hafði dreymt um.“ Norðmaðurinn spilaði í ellefu ár með Manchester United við frábæran orðstír. Stjóratíð hans hjá félaginu byrjar með glæsibrag en hann er nú þegar búinn að bæta metið sem Sir Matt Busby átti yfir bestu byrjun sem knattspyrnustjóri félagsins. „Ef ég fer aftur til Molde þá mun ég gera mitt besta fyrir félagið, en það fer allt eftir því hvenær ég fer til baka.“ „Þetta hefur verið frábært til þessa, en vonandi fæ ég að hitta fjölskylduna mína bráðlega, það er það eina neikvæða við þetta starf.“ Leikur Leicester og Manchester United hefst klukkan 14:05 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn „Hræddir erum við ekki“ Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins Sjá meira