Bayern kom til baka gegn félögum Alfreðs Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. febrúar 2019 21:25 Leikmenn Bayern fagna í kvöld vísir/getty
Liðsfélagar Alfreðs Finnbogasonar í Augsburg töpuðu fyrir Bayern München í þýsku Bundesligunni í kvöld. Alfreð er meiddur á kálfa og var því ekki með í leiknum í kvöld. Leikurinn byrjaði eins vel og óskast getur fyrir heimamenn þegar Leon Goretzka skoraði sjálfsmark strax á fyrstu mínútu. Kingsley Coman jafnaði hins vegar fyrir Bayern stuttu seinna áður en Ji Dong-Won kom heimamönnum aftur yfir. Það stefndi allt í að Augsburg færi með forystu inn í leikhléið en í uppbótartíma fyrri hálfleiks skoraði Coman sitt annað mark og jafnaði metin á ný. Í upphafi seinni hálfleiks skoraði David Alaba svo sigurmarkið fyrir Bayern eftir sendingu frá Coman. Bayern minnkaði því forskot Dortmund á toppi deildarinnar niður í tvö stig, en Dortmund á leik til góða. Augsburg er enn í fallbaráttu, er þremur stigum frá fallsæti. Juventus átti ekki í miklum vandræðum með að sigra Frosinone í ítölsku Seria A deildinni. Paulo Dybala kom Juventus yfir strax á sjöttu mínútu og tíu mínútum síðar var Leonardo Bonucci búinn að tvöfalda forystu heimamanna. Cristiano Ronaldo skoraði svo þriðja og síðasta mark Juventus í seinni hálfleik eftir sendingu frá Mario Mandzukic. Juventus hefur enn ekki tapað leik í ítölsku deildinni eftir 24 leiki, er með 14 stiga forskot á Napólí sem á þó einn leik til góða.
Ítalski boltinn Þýski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira