James Bond bað um að hitta Klopp á Anfield Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. febrúar 2019 07:00 Klopp þarf ekki að fela sig í jólasveinabúningum á æfingum. vísir/getty
James Bond bað um að hitta Jurgen Klopp sem þurfti að klæðast jólasveinabúningi í steggjun sinni svo hann þekktist ekki út á götu. Þetta kemur fram í skemmtilegu, öðruvísi viðtali við Klopp á Sky Sports. Það er smá hlé á leikjadagskrá Liverpool þessa dagana, liðið spilaði síðast leik um síðustu helgi og á ekki leik fyrr en í miðri næstu viku. Klopp nýtti fríið til þess að taka sína menn í æfingaferð til Spánar. Þar fá þeir smá tilbreytingu í æfingum sínum og Klopp fékk einnig tilbreytingu í spurningum frá blaðamönnum. Blaðamaður Sky Sports ræddi við Klopp um lífið utan vallar. „Margir frægir leikarar eru Liverpool aðdáendur. Daniel Craig, sem leikur James Bond, vildi hitta mig eftir leik í skóherberginu á Anfield,“ sagði Klopp. „Frægt fólk er bara venjulegt fólk. Hann er góður náungi og það er skemmtilegt þegar James Bond vill hitta þig.“ Klopp er eitt af þekktari andlitum fótboltaheimsins, hann var kominn upp á stjörnuhimininn sem stjóri Borussia Dortmund en hefur flogið enn hærra sem stjóri Liverpool, sérstaklega þar sem hann hefur náð frábærum árangri með liðið. „Ég fer ekkert í bæinn, bara til þess að mæta á leiki og á æfingar,“ sagði Klopp, en ítrekaði þó að þetta væri ekkert nýtt af nálinni. „Þegar ég bjó í Mainz þá gat ég ekkert gert það sem ég vildi. Ég var steggjaður í jólasveinabúningi svo fólk þekkti mig ekki.“ „Þetta var líka erfitt í Dortmund og enn erfiðara í Liverpool. Það hjálpar til að ég er ekkert mikið fyrir að vera úti.“ Klopp fær sinn skammt af fersku lofti þegar hann stendur á hliðarlínunni í níutíu mínútur. Hann þarf að þola kalt vetrarloftið í Liverpoolborg á þriðjudagskvöld þegar Bayern München mætir í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Enski boltinn Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti „Það trompast allt þarna“ Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Sjá meira