„Liverpool gæti ekki mætt Manchester United á verri tíma“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2019 13:15 Jesse Lingard og Virgil van Dijk í baráttu í fyrri leik liðanna. EPA/PETER POWELL
Liverpool fær ekki langan tíma til að komast yfir markaleysi sitt á móti Bayern München á Anfield í Meistaradeildinni í gærkvöldi því liðið heimsækir erkifjendur sína í Manchester United á sunnudaginn. Tim Sherwood, fyrrum leikmaður og knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni, er nú sérfræðingur á Sky Sports. Hann hefur áhyggjur af Liverpool liðinu í þessum leik á móti Manchester United. „Liverpool gæti ekki mætt Manchester United á verri tíma,“ sagði Tim Sherwood en liðin mætasat á Old Trafford. Liverpool vann fyrri leikinn 3-1 og það var síðasti leikur United undir stjórn Jose Mourinho. Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu og Manchester United hefur nú unnið ellefu af þrettán síðustu leikjum sínum.Have Manchester United got the momentum going in to Sunday's clash with Liverpool? Tweet your opinions and questions in below for Tim Sherwood and Steve McMahon and watch #TheDebate on Sky Sports PL pic.twitter.com/rWS7Zqznoy — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 19, 2019„Ef við myndum leyfa United-mönnum að velja hvenær þeir fengju að spila þennan leik þá væri það núna því þeir eru á miklu flugi. Ef þeir vilja líka spilla tímabilinu hjá einhverju liði í deildinni þá væri það hjá Liverpool,“ sagði Sherwood. „United-liðið er líka í baráttu um efstu fjögur sætin og Solskjær er að sýna sig sem mögulegur framtíðarstjóri. Þetta er stærsti leikur Manchester United á tímabilinu,“ sagði Sherwood. „Þessi leikur skiptir United miklu máli en samt Liverpool enn meira máli því þeir sjá meistaratitilinn í hillingum, sagði Sherwood. „City-liðið vill verða enskur meistari en leikmennirnir og stjórinn vilja líka vinna Meistaradeildina. Hún er í forgangi. Ég ætla samt ekki að ganga svo langt að segja að þeir taki fótinn af bensíngjöfinni í deildinni því þeir vilja vinna tvö ár í röð,“ sagði Sherwood. „Liverpool er með frumkvæðið núna en þurfa horfa yfir öxlina á sér því City er að koma. Ég spáði Manchester City sigri í upphafi tímabilsins og hef ekki skipt um skoðun. Í mínum huga munu City-menn ná Liverpool,“ sagði Sherwood.
Enski boltinn Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira