Handbolti

Úthúðuðu Al­freð og starfið talið í húfi í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Það er gríðarleg pressa á Alfreð Gíslasyni fyrir kvöldið en hann er öllu vanur.
Það er gríðarleg pressa á Alfreð Gíslasyni fyrir kvöldið en hann er öllu vanur. Getty/Sina Schuld

Alfreð Gíslason hefur fengið óvægna gagnrýni eftir tap Þjóðverja gegn Serbum á EM í handbolta á laugardaginn. Hann þarf nú að stýra Þjóðverjum til sigurs gegn Spáni í kvöld.

Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Stefan Kretzschmar er á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Alfreð og gekk svo langt að segja að „rútubílstjórinn eða sjúkraþjálfarinn hefði allt eins getað verið á hliðarlínunni“ gegn Serbum.

Alfreð þótti gera risastór mistök gegn Serbum þegar hann tók leikhlé sekúndubrotum áður en Juri Knorr hefði jafnað metin í 26-26. Þjálfarinn var hins vegar líka gagnrýndur almennt fyrir skort á lausnum í sóknarleiknum, að hafa haldið Knorr utan vallar stóran hluta seinni hálfleiks, og að liðið skyldi glutra niður fjögurra marka forskoti.

Nú er staðan sú að Þýskaland verður að vinna Spán í kvöld til að komast áfram í milliriðla. Ef að Serbía vinnur fyrst Austurríki, í fyrri leik kvöldsins, er ljóst að Þýskaland þarf á að minnsta kosti þriggja marka sigri að halda gegn Spánverjum.

Miklar vonir voru bundnar við Þjóðverja, sem unnu silfur á Ólympíuleikunum 2024 undir stjórn Alfreðs, fyrir mótið og Andreas Michelmann, formaður þýska handknattleikssambandsins, sagði í aðdraganda EM að ef illa færi yrði staða Alfreðs til skoðunar. Hann er þó með samning sem gildir fram yfir HM í Þýskalandi sem fram fer eftir eitt ár.

„Alfreð þjálfaði hörmulega“

Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus voru meðal þeirra sem fóru mikinn eftir tapið gegn Serbum, í hlaðvarpsþætti sínum Harzblut.

„Alfreð, hann þjálfaði hörmulega. Hann þjálfaði hörmulega. Þið getið skrifað það niður,“ fullyrti Kraus og Hens fann til með leikmönnum þýska liðsins sem honum þótti Alfreð hafa brugðist:

„Mér fannst strákana vanta leiðsögn af hliðarlínunni. Þannig blasti þetta við mér. Ég vorkenndi þeim eiginlega,“ sagði Hens.

Kraus tók undir og sagði leikmönnum greinilega ekki hafa liðið vel og talaði um „algjört kaos“ og skort á sköpunargleði í sókninni, samkvæmt þýskum miðlum.

„Þetta gengur ekki svona. Að spila svona takmarkaðan sóknarleik er ekki nóg til að vinna til verðlauna,“ sagði Kraus og Kretzschmar tók undir. „Ég er hræddur varðandi það hvernig við spilum sóknarleikinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×