Lífið

Allar konurnar komust áfram

Björk Eiðsdóttir skrifar
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Ocampo starfar á Hótel Sögu.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Ocampo starfar á Hótel Sögu. Fréttablaðið/Stefán
Einn hápunktur íslenska matardagatalsins, keppnin Kokkur ársins 2019, fer fram í Hörpu laugardaginn 23. mars næstkomandi. Þar takast á bestu matreiðslumenn landsins og keppa til úrslita um þennan eftirsótta titil sem veitir þátttökurétt fyrir Íslands hönd í Nordic Chef of the Year 2020 auk þess sem peningaverðlaun eru í boði fyrir fyrstu sætin.

Forkeppnin fór fram í gær þar sem tíu kokkar kepptu um þau fimm pláss sem í boði eru í lokakeppninni sjálfri. Allir faglærðir matreiðslumenn geta sótt um aðgang að keppninni og tók metfjöldi kvenna, eða þrjár konur, þátt nú í ár.

Iðunn Sigurðardóttir starfar hjá Íslenska Matarkjallaranum.Fréttablaðið/Stefán
„Það er mikið fagnaðarefni að sjá aukinn fjölda skráðra kvenna í keppninni. Það er okkur metnaðarmál að ná hlutfalli þeirra til jafns við karla,“ segir Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem heldur keppnina. Konur í fyrsta sinn í meirihluta Eftir stranga keppni voru úrslitin kunngjörð um miðjan dag í gær og í ljós kom að allar konurnar sem skráðar voru til keppni komust áfram. Þannig að í fyrsta sinn eru konur í meirihluta keppenda í úrslitunum.

Það eru þau Iðunn Sigurðardóttir hjá Íslenska matarkjallaranum, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Ocampo, Hótel Sögu, Mímir Restaurant, Kolbrún Hólm Þorleifsdóttir frá Deplar Farm, Sigurjón Bragi Geirsson frá Garra og Rúnar Pierre Heriveaux, Grillinu á Hótel Sögu, sem munu keppa í aðalkeppninni eftir tvær vikur og einn þessara matreiðslumanna mun standa uppi sem Kokkur ársins 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.