Lífið

Stjörnurnar keppast um að sækja dularfullar sunnudagsmessur Kim og Kanye

Birgir Olgeirsson skrifar
Segja tilganginn að bera út kærleiksboðskap en margir halda að þetta sé einnig undanfari tónleikaferðar.
Segja tilganginn að bera út kærleiksboðskap en margir halda að þetta sé einnig undanfari tónleikaferðar. Twitter
Ef þú fylgir hjónakornunum Kim Kardashian og Kanye West á samfélagsmiðlum hefur þú ábyggilega farið varhluta af dularfullum Sunnudagsmessum sem þau hafa staðið fyrir undanfarið.

Í þessum messum hefur Kanye sungið og rappað gospelútgáfur af lögum sínum og nýtur þar stuðnings frábærrar hljómsveitar og kórs. Hafa margir velt fyrir sér tilgangi þessara messa

Kim Kardashian byrjaði fyrst að deila upplýsingum um þessa Sunnudagsmessu á Twitter 6. janúar síðastliðinn. Svo virðist sem þau hafi haldið slíka messu á hverjum sunnudegi síðan þá og hafa ekki í hyggju að láta af því.

Á meðal þeirra laga sem Kanye hefur flutt í messunum eru þau sem hafa einhverja skírskotun í trúarbrögð, þar á meðal Jesus Walks, Ultra Light Beam og Reborn en hann hefur einnig talið í Vilolent Crimes, I Wonder og Bound 2.

Kanye er ekki þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum og nýtir þessar messur til að koma sínu á framfæri þar sem hann predikar yfir hópnum undir taktfastri tónlist.

Hann leyfir einnig félögum sínum að vera með og hafa listamenn á borð við Charlie Wilson, Kid Cudi og Francis and the Lights fengið að munda hljóðnemann.

Kanye virðist einnig hafa flutt óútgefin lög á þessum messum sem margir halda að muni verða á væntanlegri plötu hans Yandhi.

Hafa margir velt fyrir sér tilgangi þessara Sunnudagsmessa en söngvarinn Tony Williams sagði tilganginn vera að koma kærleiksboðskapi út í samfélagið.

Sumir halda að þetta sé vel útfærð leið til að kynna væntanlega plötu hans og tónleikaferð, að mögulega sé þetta eitthvað sem koma skal á tónleikum hans.

Kanye hefur allavega framleitt boli merkta Sunday Service og flestar þessar messur átt sér stað í höfuðstöðvum Adidas í Portland, þó svo að nokkrar hafi farið fram utandyra.

Kardashian-fjölskyldan mætir reglulega í þessar messur og hafa fjöldi frægra sótt þessar messur með þeim, þar á meðal spjallþáttastjórnandinn David Letterman, leikarinn Orlando Bloom og tónlistarmaðurinn Diplo.

Fyrr í dag var að sjálfsögðu haldin messa, í Calabasas í Kaliforníu, þar sem rapparinn DMX leit við og predikaði yfir hópnum. DMX er þekktur fyrir predikanir sem má finna á öllum plötum hans.

DMX hefur verið iðinn síðastliðnar vikur við að koma sér aftur í sviðsljósið eftir að hafa losnað úr fangelsi í janúar síðastliðnum.

En það var ekki DMX sem stal senunni í messunni heldur dóttir Kim og Kanye, North, sem dansaði eins og hún ætti lífið að leysa við þennan frábæra flutning hljómsveitarinnar og kórsins á laginu Lift Yourself.

Hvað sem öllu líður um tilganginn þá ætti vafalaust ekki mörgum á leiðast á tónleikum með Kanye West ef þeir verða með þessum hætti. 

 
 
 
View this post on Instagram
03.03.19

A post shared by Kanye Sunday Services (@kanyesundayservices) on Mar 3, 2019 at 12:32pm PST






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.