Valgarð Íslandsmeistari í fjölþraut þriðja árið í röð Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. mars 2019 17:55 Valgarð Reinhardsson og Agnes Suto-Tuuha eru Íslandsmeistarar í fjölþraut mynd/fimleikasamband íslands
Valgarð Reinhardsson varði Íslandsmeistaratitil sinn í fjölþraut á Íslandsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í fimleikahúsi Ármanns í Laugardalnum. Þetta var þriðji titill Valgarðs í röð og fjórði yfir allt. Hann vann titilinn nokkuð örugglega í ár. Valgarð fékk 76.598 stig fyrir æfingar sínar en næsti maður var Martin Bjarni Guðmundsson með 74.432 stig. Martin varð Íslandsmeistari unglinga í fyrra en hann var að keppa í fyrsta skipti í fullorðinsflokki. Agnes Suto-Tuuha vann Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki. Þetta er í fyrsta skipti sem hún vinnur titilinn. Keppni í kvennaflokki var æsispennandi og aðeins munaði 0.1 stigi á milli Agnesar og Thelmu Aðalsteinsdóttur fyrir síðasta áhaldið. Agnes lauk leik með 47.750 stig og Thelma 47.450. Þriðja varð Emilía Björt Sigurjónsdóttir með 45.050 stig. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Irina Sazonova, gat ekki keppt í ár þar sem hún er nýbúin að eiga barn. Hún sat þess í stað í dómarastólnum í dag. Á morgun fer fram keppni á einstökum áhöldum.
Fimleikar Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? Fær verðlaun sem bæði Messi og Ronaldo fengu á sínum tíma Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Sjá meira