Scholes sagði upp í gegnum WhatsApp 15. mars 2019 09:30 Paul Scholes var ekki lengi við störf. vísir/getty
Manchester United-goðsögnin Paul Scholes sagði óvænt upp í gær sem knattspyrnustjóri D-deildarliðsins Oldham Athletic eftir aðeins 31 dag og sjö leiki í starfi. Scholes sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem að hann sagðist vonsvikinn að þurfa að grípa til þessara ráða en hann vonaðist til að stýra liðinu að minnsta kosti í það hálft annað ár sem til stóð samkvæmt ráðningarsamningnum. Miðjumaðurinn magnaði hefur stutt Oldham allt frá barnæsku en í sömu yfirlýsingu skaut hann lúmskt á Abdallah Lemsagam, stjórnarformann og eiganda félagsins, og sagði að hann hefði ekki fengið að stýra Oldham-liðinu án afskipta eins og samið var um. Samkvæmt heimildum Sky Sports fundaði Scholes hvorki með Lemsagam né hringdi í eigandann heldur sagði hann upp með textaskilaboðum í gegnum smáforritið WhatsApp. Scholes er sagður ekki hafa rætt við einn einasta mann í stjórn Oldham áður en að hann tók ákvörðunina að senda uppsagnarbréfið sitt með þessum hætti. „Oldham er vonsvikið með þessa ákvörðun Paul að hætta og ástæða hans kemur á óvart. Félagið studdi Paul algjörlega og gaf honum allt sem beðið var um án þess að hann kvartaði. Hann gaf engum tækifæri til að ræða vandamálin. Hann sagði bara upp með textaskilaboðum og hefur síðan neitað að ræða málin,“ sagði Lemsagam í yfirlýsingu í gær.
Enski boltinn Tengdar fréttir Scholes hættur með Oldham eftir sjö leiki Scholes hættur eftir 31 daga með Oldham. 14. mars 2019 17:27 Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Handbolti Í beinni: Real Sociedad - Barcelona | Án Orra reyna þeir að skáka Börsungum Fótbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Fleiri fréttir Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Sjá meira
Scholes hættur með Oldham eftir sjö leiki Scholes hættur eftir 31 daga með Oldham. 14. mars 2019 17:27