KR-ingar fyrsta liðið inn í undanúrslitin tíunda árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2019 16:30 Jón Arnór Stefánsson skoraði mikilvægar körfur í leikjunum á móti Keflavík. Vísir/Bára
KR sópaði Keflavík í sumarfrí á Sunnubrautinni í gærkvöldi og er því komið í undanúrslit úrslitakeppni Domino´s deildar karla ellefta árið í röð. Í hinum þremur einvígunum er staðan 2-1 (fyrir Njarðvík, Tindastól og Stjörnunni) og í þeim einvígum fer því fjórði leikurinn fram ólíkt einvígi Keflavíkur og KR. ÍR og Grindavík verða bæði á heimavelli í kvöld og reyna þar að tryggja sér oddaleik. Leikur Grindavíkur og Stjörnunnar hefst klukkan 18.30 (beint á Stöð 2 Sport) en leikur ÍR og Njarðvíkur hefst klukkan 20.15 (beint á Stöð 2 Sport). Það sem gerir þetta afrek KR-liðsins enn merkilegra er að KR-ingar hafa nú verið fyrsta liðið inn í undanúrslitin tíu ár í röð. KR hefur ekki tapað leik í átta liða úrslitum síðan vorið 2008 og hafa því frá þeim tíma klárað átta liða úrslitin eins og fljótt og hægt var. Grindvíkingar komust á sama tíma og þeir í undanúrslitin vorið 2012 en hin árin hefur engu liði tekist að klára átta liða úrslitin jafnfljótt og Vesturbæingar. Njarðvíkingar áttu möguleika að enda þessa hrinu KR-liðsins með sigri á ÍR á heimavelli á miðvikudagskvöldið (og vinna 3-0) en Breiðhyltingum tókst að tryggja sér fjórða leikinn í Seljaskóla og fer hann fram í kvöld. Það gaf KR-ingum enn eitt tækifærið á því að vera fyrstir inn í undanúrslit og það nýttu þeir með sannfærandi 21 stigs sigri á Keflvíkingum í gærkvöldi. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið hefur verið fyrst inn í undanúrslitin frá 2008. Mörg þeirra hafa orðið Íslandsmeistarar eins og KR-ingar undanfarin fimm ár.Fyrsta liðið inn í undanúrslit úrslitakeppni karla síðustu ár: 2019 - KR (???) 2018 - KR (Íslandsmeistari) 2017 - KR (Íslandsmeistari) 2016 - KR (Íslandsmeistari) 2015 - KR (Íslandsmeistari) 2014 - KR (Íslandsmeistari) 2013 - KR (Undanúrslit) 2012 - KR (Undanúrslit) og Grindavík (Íslandsmeistari) 2011 - KR (Íslandsmeistari) 2010 - KR (Undanúrslit) 2009 - Grindavík (2. sæti) 2008 - Keflavík (Íslandsmeistari)
Dominos-deild karla Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira