Lífið

Bieber tekur sér hlé frá tónlistinni fyrir andlegu hliðina

Sylvía Hall skrifar
Margir aðdáendur hafa beðið spenntir eftir nýrri tónlist frá Bieber.
Margir aðdáendur hafa beðið spenntir eftir nýrri tónlist frá Bieber. Vísir/GETTY
Justin Bieber tilkynnti fylgjendum sínum á Instagram að hann hygðist taka sér hlé frá tónlist til þess að vinna í „djúpstæðum vandamálum“. Hann lofi þó að snúa aftur með enn betri tónlist eins fljótt og auðið er.

Í færslunni segir Bieber að hann hafi tekið eftir því að aðdáendur séu farnir að kalla eftir nýrri plötu frá honum. Þó að tónlistin skipti hann miklu máli sé ekkert mikilvægara en fjölskyldan og heilsan.

„Ég hef verið á tónleikaferðalagi öll mín unglingsár og allan þrítugsaldurinn. Ég áttaði mig á því, eins og þið tókuð örugglega eftir, að ég var óhamingjusamur á síðasta tónleikaferðalagi og hvorki ég né þið eigið það skilið,“ skrifar Bieber í færslunni.

Hann segir tónleikagesti borga til þess að sjá líflega og skemmtilega tónleika en á síðasta tónleikaferðalagi hafi hann ekki haft tilfinningalegt svigrúm til þess. Hann hafi því ákveðið að einblína á að vinna í djúpstæðum vandamálum sínum til þess að halda heilsu og viðhalda hjónabandi sínu, en söngvarinn er giftur fyrirsætunni Hailey Baldwin.

Síðasta tónleikaferðalag söngvarans var eftir plötuna Purpose sem hann gaf út árið 2015 og hélt hann meðal annars tvenna tónleika á Íslandi. Tveimur árum seinna batt hann skyndilega endi á tónleikaferðalagið vegna „ófyrirséðra vandamála“og aflýsti fjórtán tónleikum.

„Ég kem tvíefldur til baka, bíðið bara,“ skrifaði Bieber að lokum.

View this post on Instagram

So I read a lot of messages saying you want an album .. I've toured my whole teenage life, and early 20s, I realized and as you guys probably saw I was unhappy last tour and I don't deserve that and you don't deserve that, you pay money to come and have a lively energetic fun light concert and I was unable emotionally to give you that near the end of the tour. I have been looking, seeking, trial and error as most of us do, I am now very focused on repairing some of the deep rooted issues that I have as most of us have, so that I don't fall apart, so that I can sustain my marriage and be the father I want to be. Music is very important to me but Nothing comes before my family and my health. I will come with a kick ass album ASAP, my swag is undeniable and my drive is indescribable his love is supernatural his grace is that reliable.... the top is where I reside period whether I make music or not the king said so. but I will come with a vengeance believe that.. (grammar and punctuation will be terrible pretend it's a text where u just don't care).

A post shared by Justin Bieber (@justinbieber) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.