Vegum lokað vegna veðurs og björgunarsveitir aðstoða ökumenn Kjartan Kjartansson skrifar 22. mars 2019 17:43 Um fimmtíu björgunarsveitarmenn hafa sinnt veðurtengdum útköllum í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Nokkrum vegum á landinu suðvestan- og norðanverðu hefur verið lokað vegna veðurs nú síðdegis. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem hafa fest sig. Hellisheiði, Þrengslum, Lyngdalsheiði, Mosfellsheiði, Krýsuvíkurvegi og Fagradalsvegi hefur verið lokað vegna veðurs. Þá er þungfært á Ólafsfjarðarvegi á milli Akureyrar og Dalvíkur, að því er kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að tæplega fimmtíu björgunarsveitarmenn hafi sinnt ýmsum verkefnum vegna veðurs í dag. Nú eftir klukkan fimm voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út vegna bíla sem sitja fastir í ófærð á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Norðurlandi hafa björgunarsveitir aðstoðað bílstjóra í Ljósavatnsskarði, við Héðinsfjarðargöng þar sem tveir bílar lentu í árekstri, og við Húsavík. Einnig fóru tuttugu björgunarsveitarmenn til að sinna verkefnum við Eyjafjörð þar sem bílar sitja fastir. Björgunarsveitarmenn hafa jafnframt mannað lokanir á Hellisheiði, Þrengslum og Lyngdalsheiði á Suðurlandi og á Fagradal á Austurlandi.
Veður Mest lesið Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Erlent Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Veður Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Sjá meira