Innlent

„Í­búar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ragnar Sigurðsson er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og er bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð.
Ragnar Sigurðsson er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og er bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð.

Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir fyrirhugaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Skerðingin sé aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni. 

Fyrir helgi var greint frá áformum Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að breyta fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Núna fá íbúar með lögheimili utan stórhöfuðborgarsvæðisins fjörutíu prósenta afslátt af sex flugleggjum á ári en til stóð að breyta afslættinum í sjö þúsund krónur á fluglegg.

Breytingin hlaut töluverða gagnrýni um helgina og sagðist Eyjólfur þá vera með til skoðunar að hækka afsláttinn upp í níu þúsund krónur. Þar með hafi Loftbrúin aldrei verið jafn fjármögnuð.

Þrátt fyrir breytinguna leggst SSA gegn fyrirhugaðri breytingu og segir í ályktun að með henni sé jafnræði á niðurgreiðslu fellt og brott auk þess sem þeir sem mest þurfa að borga fái hlutfallslega minnst.

Þingmenn verði að standa með kjósendum

Haft var eftir Eyjólfi fyrir helgi að með nýja fyrirkomulaginu gæti afslátturinn orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld.

„Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu. Skerðingin er aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni enda gegnir innanlandsflugið mikilvægu hlutverki almenningssamgangna Austurlands,“ segir í ályktuninni.

„SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum í fasta krónutölu og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðninginn enn frekar með hærra hlutfalli afsláttar á innanlandsflugi. Þingmenn kjördæmisins verða að standa með íbúum gegn skerðingu á meginsamgönguæð fjórðungsins.“

Þingmenn Norðausturkjördæmis hafa verið boðaðir á fund í næstu viku eftir að Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, óskaði eftir því.

Samráðsleysi og boðaðar aðgerðir gegn landsbyggðinni

SSA gagnrýnir þá harðlega samráðsleysi stjórnvalda sem hafi einkennt undirbúning breytinganna. Það sé óásættanlegt að fara í slíkt án þess að hafa raunverulegt samráð. Það sé mikilvægt að þekking og reynsla heimamanna hafi vægi við ákvarðanatöku. 

„Þegar fulltrúar landsbyggðarinnar lýsa aðgerðum stjórnvalda sem aðför að búsetuskilyrðum verður þeirri gagnrýni ekki vísað frá sem einberri upplifun,“ segir í yfirlýsingunni.

Þess í stað byggi gagnrýnin á þegar boðuðum áformum á við hækkun kílómetragjalds, hækkun virðisaukaskatts á aðgangi að baðlónum, aukinni miðstýringu lögregluembætta og hugmyndum um fækkun þingmanna.

„Samanlagt auka þessar aðgerðir kostnað, veikja svæðisbundið ákvörðunarvald og þrengja að forsendum búsetu og atvinnustarfsemi á landsbyggðinni.“

8SSA leggur áherslu á að byggðastefna verður að birtast í raunverulegum ákvörðunum og fjármögnuðum aðgerðum, ekki aðeins í yfirlýsingum um mikilvægi landsbyggðarinnar. Ábyrg byggðastefna verður ekki mótuð án aðkomu þeirra sem búa á landsbyggðinni. Það er ekki ásættanlegt að stjórnvöld taki ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á lífsskilyrði íbúa án þess að hlusta á sjónarmið þeirra og sveitarfélaga þeirra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×