Haukarnir endurheimta Íslandsmeistara úr Vesturbænum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2019 10:39 Emil Barja lyfti síðasta bikarnum sem Haukarnir unnu í meistaraflokki karla en þeir urðu deildarmeistarar vorið 2018. Vísri/Andri Marinó
Emil Barja hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Íslandsmeistara KR og ganga aftur til liðs við uppeldisfélagið sitt Hauka. Haukar segja frá þessu á heimasíðu sinni og þar kemur fram að Körfuknattleiksdeild Hauka og Emil hafi gert með sér tveggja ára samning. Emil er Haukum vel kunnugur enda spilað allan sinn feril með Haukum fyrir utan þetta eina tímabil með KR-liðinu í vetur. KR-ingar enduðu tímabilið með Íslandsmeistaratitli og því dýrmæt reynsla sem Emil tekur með sér úr Vesturbænum. Emil var fyrirliði Hauka þegar hann yfirgaf félagið eftir 2017-18 tímabilið. Emil mun einnig sinna yfirþjálfarastöðu yngri flokka Hauka og stýra faglegu starfi við þjálfun yngri flokkanna. Emil er menntaður íþróttafræðingur og búinn að sinna þjálfun yngri flokka um nokkurt skeið. „Ég er mjög ánægður að vera kominn aftur í Hauka,“ sagði Emil Barja þegar undirskriftin var klár. „Ég vil þakka KR fyrir allt og flott tímabil að baki þar. Það eru spennandi tímar framundan í Hafnarfirði sem gaman verður að vera hluti af. Nýr þjálfari og fyrsta tímabilið í Ólafssal,“ bætti hann við í viðtali í frétt á heimasíðu Hauka. Isarel Martin, nýr þjálfari Haukanna, hafði þetta að segja um nýjasta leikmanninn sinn. „Endurkoma Emils eru frábærar fréttir fyrir Hauka. Hann er mikill keppnismaður og mun hans reynsla og leiðtogahæfileikar nýtast okkur innan vallar sem utan,“ sagði Isarel Martin í frétt á heimasíðu Hauka. Emil Barja var með 6,6 stig, 3,9 fráköst og 3,8 stoðsendingar í deildarleikjum sínum með KR á nýloknu tímabili. Hann skoraði síðan 12 af 15 stigum sínum í úrslitaeinvíginu á móti ÍR í oddaleiknum sem KR-liðið vann 98-70.
Dominos-deild karla Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti Fleiri fréttir Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira