Ostaflögurnar njóta vaxandi vinsælda Þorstinn Friðrik Halldórsson skrifar 22. maí 2019 07:00 Vinirnir fengu hugmyndina eftir að hafa plokkað ost af samlokugrilli.
The Snack Company, íslenska ostaflögugerðin, hefur tryggt sér minnst 66 milljóna króna fjármögnun til þess að styðja við öran vöxt fyrirtækisins á Íslandi og í nágrannalöndum. Fyrirtækið hefur landað samningum við stórar sænskar matvörukeðjur og stefnir á að ryðja sér til rúms á heimsmarkaðinum. Vinirnir og viðskiptafélagarnir Jósep Birgir Þórhallsson og Guðmundur Páll Líndal standa að baki The Snack Company sem framleiðir Lava Cheese-ostaflögurnar. Þær eru framleiddar úr bráðnum og storknuðum osti eins og margir kannast við af samlokugrillinu en út frá því kviknaði einmitt hugmyndin. „Sumarið 2016 vorum við að fá okkur bjór og grillaðar samlokur. Fyrst plokkuðum við ostinn af samlokugrillinu til að borða hann og þá fórum við að velta fyrir okkur hvers vegna það væri ekki verið að gera snakk úr þessu,“ segir Jósep Birgir í samtali við Markaðinn. Þá hófust tilraunir og úr varð heimagerð útgáfa af ostaflögunum með chili-bragði. „Við fórum með þær niður í miðbæ Reykjavíkur og vorum með tíu búðir á lista sem við vildum kynna þetta fyrir. Pælingin var að ef ein þeirra vildi selja þetta þá væri þess virði að þróa hugmyndina áfram. Það varð síðan raunin að fyrstu tvær búðirnar pöntuðu miklu meira en við bjuggumst við þannig að við vorum komnir í smá vanda,“ segir Jósep. Þeir Guðmundur pöntuðu sérstakan ofn af netmarkaðstorginu Ebay til að framleiða fleiri flögur. Þeir leituðu einnig ráða hjá Matís sem kenndi þeim allt sem kunna þarf um framleiðsluna enda er bakgrunnur þeirra í verkfræði og lögfræði. „Jólin 2016 tókum við þátt í matarmarkaði Búrsins og varan fékk góða umfjöllun. Stuttu síðar var röð í básinn okkar og allt seldist upp. Eftir það varð sprenging í eftirspurninni og við höfum glímt við að halda í við hana síðan.“Næsta árið var vöxturinn fjármagnaður úr vasa þeirra tveggja en jólin 2017 lönduðu þeir hlutafjáraukningu upp á 35 milljónir króna frá eiganda eins stærsta matvælafyrirtækis Íslands. Fjárfestingin gerði þeim kleift að þrefalda söluna hérlendis og koma á fót framleiðslu í Svíþjóð. Þar hefur The Snack Company hafið sölu í verslunum matvörurisa á borð við ICA, Hemköp og Coop. Jósep segir að miklum vexti hafi fylgt miklar áskoranir. „Það kostar mikið að vaxa fyrir framleiðslufyrirtæki vegna þess að þú þarft að kaupa í framleiðsluna löngu áður en þú getur selt hana. Við fáum fyrirspurnir í hverri viku frá heildsölum um að hefja sölu á vörunni. Ef maður segir já við öllum þá springur þetta. Við þurfum að skipuleggja vel hvernig hægt er að ná sem mestri útbreiðslu án þess að brenna sig á því.“Brennda bragðið sérkenni Útbreiðsla á Norðurlöndunum er aðeins byrjunin, en The Snack Company er að klára undirritun samninga við danska dreifingarrisann Geia Foods sem dreifir matvælum um öll Norðurlöndin. Við upphaf þess samstarfs er búist við að útbreiðsla Lava Cheese fimmfaldist og ef allt gengur að óskum mun Geia sjá um dreifingu á stórum hluta Norðurlanda. Jósep segir að markmiðið sé að vera þekkt vörumerki á heimsvísu. „Þetta er nýr markaður og við trúum því að ef við höldum rétt á spöðunum og náum að vaxa nógu hratt getum við verið tengdir við þennan snakkmarkað eins og kók er tengt við gos,“ segir Jósep. Spurður um keppninauta segir hann að nokkur fyrirtæki framleiði ostaflögur, aðallega í Bandaríkjunum, en ekkert með brennda bragðinu sem einkennir Lava Cheese. The Snack Company selur þrjár bragðtegundir af ostaflögum; Chili-ost, reyktan ost, og venjulegan cheddar-ost. Frá stofnun fyrirtækisins hafa selst 190 þúsund kassar af Lava Cheese fyrir alls 72 milljónir. Íslenskar verslanir hafa gefið vilyrði fyrir 25 þúsund kassa sölu á mánuði sem er tvöfalt meira en framleiðslugeta fyrirtækisins er í dag á Íslandi. Ketó-æðið knúði eftirspurn Þá segir Jósep að vaxandi áhugi á ketó-mataræðinu hafi ýtt undir sölu á ostaflögunum. „Við tókum eftir því að fólk tengt LKL- og ketó-mataræðinu sýndi Lava Cheese mikinn áhuga. Þegar við skoðuðum leitarsögu ketó og LKL á Google kom í ljós skemmtileg tilviljun, en leitirnar fóru að taka mikið stökk á sama tíma og við stofnuðum félagið. Þessi markaður hefur átt í miklum vanda með að finna snakk sem passar í lágkolvetnafæðið og smakkast vel. Lava Cheese er fullkomið fyrir þann hóp.“ Markmið Jóseps og Guðmundar var að safna minnst 350 þúsund evrum og það náðist á innan við 5 klukkustundum þó að fresturinn hafi verið 30 dagar. Nú er fjármögnunin komin upp í 477 þúsund evrur en hún getur hæst farið upp í 650 þúsund. Stefnt er að því að klára fjármögnunina upp í hámarkið. Fjármögnunin fór í gegnum eistneska fjárfestingarvettvanginn Funderbeam sem hefur nýlega komið starfsstöð á fót hér á landi. Funderbeam er markaðstorg fyrir fjárfestingar í sprotafyrirtækjum sem gerir fjárfestum kleift að fjárfesta smærri og stærri upphæðir í óskráðum félögum og eignast hlut.
Birtist í Fréttablaðinu Matur Nýsköpun Mest lesið Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu Atvinnulíf Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Viðskipti innlent Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Viðskipti innlent Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra Viðskipti erlent Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Sjá meira