Nýsköpun

Nýsköpun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn

Davíð Már Stefánsson var nítján ára þegar hann settist niður með foreldrum sínum og sagði þeim loksins frá því sem hafði verið í gangi. Hann var orðinn spilafíkill og búinn að eyða öllum peningnum sem hann átti. Nokkrum klukkutímum síðar læsti hann sig inni í herbergi og byrjaði aftur að spila.

Lífið
Fréttamynd

Selur gamla fyrir­tækinu annað á tæpa þrjá milljarða

Að undangengnu alþjóðlegu útboði hefur Infocapital undirritað kaupsamning við Creditinfo Group um kaup hins síðarnefnda á öllu hlutafé í Everydata Group, leiðandi fjárhagsupplýsingastofu með starfsemi í Karabíska hafinu. Heildarvirði viðskiptanna getur farið yfir 20 milljónir bandaríkjadala, um 2,9 milljarða króna, náist tiltekin árangursviðmið á árinu. Reynir Finndal Grétarsson er langsamlega stærsti eigandi Infocapital en einnig stofnandi Creditinfo. Hann seldi 69 prósenta hlut sinn í Creditinfo á 13,5 milljarða árið 2022.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir til­kynningu

Gengi lyfjafyrirtækisins Oculis hefur hækkað um tæp sjö prósent í tveimur viðskiptum fyrir alls 363 þúsund krónur í morgun. Félagið gaf út tilkynningu í gær um jákvæð viðbrögð taugasjúkdómadeildar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna við umsókn varðandi klíníska þróunaráætlun lyfsins Privosegtor við bráðum MS-köstum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug

Rafmagnsflugvélin sem líklegust þykir til að ryðja brautina í átt að sjálfbærum og arðbærum mengunarlausum flugsamgöngum hefur fengið samþykki bandarísku flugmálastjórnarinnar, FAA, til að fara í sitt fyrsta reynsluflug og hefja flugprófanir. Icelandair hefur með viljayfirlýsingu skráð sig fyrir kaupum á fimm eintökum þessarar tegundar.

Innlent
Fréttamynd

Ómál­efna­legir dónar fara í skammar­krókinn

Speakness er íslenskt athugasemdakerfi sem hefur verið í prófun og er nú að færast á næsta stig. Einn forkólfa fyrirtækisins Veriate ehf. segir hugmyndina með vörunni þá að styrkja fjölmiðla í sessi því ef þeir holast að innan meira en orðið er verður lýðræðið næst í röðinni.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt app til að finna týndar kisur frum­sýnt í dag eftir sex ára þróunar­vinnu

Hugbúnaðarfræðingur sem hefur síðustu sex ár unnið að og þróað Kattaskránna leggur nú lokahönd á nýtt app sem hann er hægt að hlaða niður í gegnum glænýjan kattarvef. Þar er hægt að haka við að kisa sé týnd og fá þá „kattavinir“ í nágrenninu skilaboð í símann sinn um týndu kisuna. Ríflega tvö þúsund kisur eru þegar skráðar í gagnagrunn Kattaskránnar og hafa bæði dýralæknar og lögreglan leitað í grunninn við mál sem snúa að köttum.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­mögnunin á að auka trúverðug­leika Controlant í augum við­skipta­vina

Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur boðað til hluthafafundar í byrjun næsta mánaðar, áformar núna að sækja sér allt að þrettán milljónir Bandaríkjadala í aukið fjármagn með útgáfu breytanlegra skuldabréfa. Markmiðið með útgáfunni er meðal annars sagt vera til að auka trúverðugleika félagsins gagnvart væntanlegum viðskiptavinum.

Innherji
Fréttamynd

Stjörnufans í eins árs af­mæli

Það var líf og fjör í Vesturbænum á dögunum þegar nýsköpunarstofan Studioek fagnaði eins árs afmæli sínu með teiti á skrifstofu sinni. Meðal gesta voru Benedikt Bjarnason, Marteinn Högni og Eva Einarsdóttir.

Lífið
Fréttamynd

Bein út­sending: Ný­sköpunar­verð­laun Norður­landanna

Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. 

Erlent
Fréttamynd

Gengi Alvotech tekur kipp

Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikil­vægi kennslu í ný­sköpun í há­skólum

Nýsköpun er gjarnan tengd við sprotafyrirtæki, frumkvöðla. stórar fjárfestingar og uppfinningar sem ætlað er að breyta heiminum. Það er þó aðeins hluti af myndinni. Nýsköpun snýst líka um að koma auga á það sem má gera betur, finna lausnir og hafa hugrekki til að prófa nýjar leiðir. Hún getur átt sér stað hvar sem er; í litlu fyrirtæki, stórri stofnun, skólastofu, heilbrigðiskerfinu, tæknifyrirtæki eða opinberri þjónustu.

Skoðun