Sumarspá Siggu Kling – Tvíburarnir: Ástin færir þér mikið þegar þú hleypir henni að Sigga Kling skrifar 7. júní 2019 09:00
Elsku Tvíburinn minn, þú ert að stíga inn í næsta mánuð sem er svo merkilegur því hann gefur þér tækifæri til að njóta þín, þú færð þínu framgengt með lipurð og lyftir anda þínum á hærri tíðni. Þú ert svo mikið sumar að það er eins og kátínu og spennu sé sprautað beint í æðar þínar. Þú tekur ákvarðanir eins og vindurinn og ekkert fær þig stöðvað að færa þig úr einum stað yfir á annan. Þú átt eftir að renna niður glæfralegustu brekkurnar eins og ekkert sé og fólk verður hissa í kringum þig og skilur ekkert í hvað er að gerast. Þú ert svo mikill snillingur í því að vera öðruvísi en aðrir og hrista þig útúr stöðluðum römmum annarra; Litlir kassar á Lækjarbakka, litlir kassar og allir eins var svo sannarlega ekki samið um þig. Að sjálfsögðu hefur þú upplifað erfiða tíma og verið niðurnjörfaður, þessvegna nýturðu þess enn betur að geta komið og farið að vild. Þú átt eftir að taka ákvörðun um eitthvað mikilvægt og ekkert í veröldinni mun stöðva þig, þú lítur á lífið eins og risastóran söngleik þar sem þú ert leikstjórinn. Ástin færir þér mikið þegar þú hleypir henni að og ef við viljum að lífið sé skemmtilegt þá náum við okkur í Tvíbura og þó að allt virðist óskipulagt hjá þér, þá verður útkoma þín svo einstök að allir verða undrandi. Gríptu daginn, Carpe Diem, og lifðu hann eins og hann væri þinn síðasti, því þú skilur það oft ekki þú ert fæddur til að lifa góðu lífi og það er stundum liðið svolítið langt á ævi þína áður en þú skilur þá staðreynd. Svo það hentar þér ekki að læra eða að vinna við eitthvað „praktískt“ eins og til dæmis viðskiptafræði því það þarf að vera lifandi og litríkt til þess að þú njótir þín og blómstrir. Kossar og knús, Sigga Kling.Tvíburar 21. maí - 21. júníÖrn Árnason leikari, 19, júní Össur Skarphéðinsson húmoristi, 19. júní Páll Magnússon þingmaður , 17. júní Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður, 23. maí Heimir Hallgrímsson knattspyrnuþjálfari, 10. júní Donald Trump, Bandaríkjaforseti, 14. júní Bjartmar Guðlaugsson, söngvari og snillingur, 13. júní Dagur B. Eggertsson, 19. júní Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður 12. júní Aníta Briem, leikkona, 29. maí Ingó Veðurguð, tónlistarmaður, 31. maí Joan Rivers, leikkona, 8. júní Marilyn Monroe, 1. júní Selma Björnsdóttir, 13. júní Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakona, 21. júní
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira