Þýskaland átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Suður-Afríku að velli í B-riðli HM kvenna í dag. Lokatölur 0-4, Þjóðverjum í vil.
Þýska liðið vann riðilinn með fullu húsi stiga og án þess að fá á sig mark. Suður-Afríka tapaði hins vegar öllum þremur leikjunum og er fyrsta liðið sem er úr leik á HM.
Melanie Leupolz kom Þýskalandi yfir á 14. mínútu þegar hún skallaði hornspyrnu Verenu Schweers í netið.
Á 29. mínútu jók Sara Däbritz forystu Þjóðverja þegar hún nýtti sér skelfileg mistök suður-afríska markvarðarins, Andile Dlamini. Alexandra Popp skoraði svo þriðja mark Þýskaland með skalla þegar fimm mínútur voru til hálfleiks.
Aðeins eitt mark var skorað í seinni hálfleik. Það gerði Lina Magull með skoti af stuttu færi á 58. mínútu.
Þetta er í fjórða sinn sem Þýskaland vinnur alla sína leiki í riðlakeppninni á HM. Þýska liðið gerði það einnig 1991, 2003 og 2011.

