Fótbolti

Sjötta líf­veran nefnd eftir Lionel Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi hefur bæði skapað sér nafn í fótboltanum og í náttúrufræðinni.
Lionel Messi hefur bæði skapað sér nafn í fótboltanum og í náttúrufræðinni. Getty/Luciano Bisbal

Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hefur ekki aðeins skapað sér nafn í knattspyrnuheiminum heldur einnig í vísinda- og náttúruheiminum. Hann hefur afrekað nánast allt á fótboltaferlinum og auki hefur hann nú opinberlega sex tegundir nefndar eftir sér.

Argentínumaðurinn hafði þar til nýlega reyndar fimm tegundir þegar nefndar eftir sér, sem var þegar orðið að heimsmeti hjá Guinness. Nú hefur sú sjötta bæst í hópinn.

Ný plöntutegund fær nefnilega nafn Messi vegna lita sinna. Nýuppgötvaða tegundin hefur hlotið nafnið „Salvia messii“ til heiðurs hinum 39 ára gamla leikmanni. Plantan á heimkynni sín í Andesfjöllum í Perú.

Skýringin liggur í hvítum og ljósbláum blómum plöntunnar, sem minna á landsliðsbúning Argentínu.

Nafnið endar á auka „i“ vegna þess að það fylgir grasafræðilegum nafngiftarreglum, þar sem stafnum er bætt við til að gefa til kynna að plantan sé nefnd í höfuðið á manneskju.

Messi lék nýverið sinn 208. og síðasta landsleik fyrir Argentínu. Hann skoraði 126 mörk fyrir þjóð sína.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Argentínu 18 ára gamall árið 2005 og varð fljótt lykilmaður. Hann vann Copa América tvisvar auk heimsmeistaratitilsins árið 2022. Messi tapaði einnig tvisvar í úrslitaleik HM (2014 og 2026).

Enn um sinn heldur ferillinn áfram með félagsliði í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Þar leikur hann með Inter Miami og er sem stendur samningsbundinn út tímabilið 2028.

Á laugardag skoraði Messi tvö mörk í 3-1 sigri á Atlanta United. Hann hefur nú skorað 936 mörk með félagsliðum og landsliði. En hvað með hinar tegundirnar?

Vísindamenn uppgötvuðu nýja snákategund í Ekvador árið 2023 og nefndu hana Synophis messii til heiðurs stórstjörnunni. Snákurinn er lítil, eiturlaus tegund sem lifir í skýjaskógum Ekvadors. Rannsakendurnir vonuðust einnig til þess að með því að nefna hann eftir jafn þekktum manni og Messi myndi athygli beinast í auknum mæli að einstöku dýralífi svæðisins og nauðsyn þess að vernda það.

Einnig árið 2023 uppgötvuðu vísindamenn nýja köngulóartegund í Argentínu og nefndu hana Acanthogonatus messii. Þetta er lítil tegund sem grefur sig í jörðu og finnst í sendnu landslagi þessa suðurameríska lands.

Tegundirnar fimm eru: Liolaemus messii, eðla af undirættbálki iguana frá Rosario de Lerma-héraði í Argentínu, nefnd árið 2021; Acanthogonatus messii, jarðgrafandi kónguló af ættbálki mygalomorpha frá argentínsku Patagóníu, nefnd árið 2023; Discinisca messi, steingervingategund armfætlu frá meíósentímabilinu í Argentínu, nefnd árið 2023; Vultur messii, steingervingategund kondórs frá plíósentímabilinu í Argentínu, nefnd árið 2023; og Cercopemyces messii, sveppategund sem fannst í skýjaskógum Andesfjalla í Argentínu og var formlega lýst í tímaritinu Mycological Progress í maí 2024.“

Önnur argentínsk goðsögn, Diego Maradona, hefur einnig nokkrar tegundir nefndar eftir sér.

Eitt dæmi er Bogasonia maradoniana, djúpsjávarsnigill sem argentínskir vísindamenn uppgötvuðu. Þeir völdu nafnið til heiðurs Maradona því hann var þjóðartákn sem færði Argentínu stolt og gleði, sérstaklega eftir sigurinn á HM 1986.

Annað dæmi er Diegoglossidium maradonai, sníkjuflatormur sem finnst í ferskvatnsfiskum. Rannsakendurnir nefndu bæði nýju ættkvíslina og tegundina eftir Maradona og útskýrðu að tileinkuninni væri ætlað að fagna áhrifum hans og þeirri hamingju sem hann veitti milljónum manna um allan heim.

Þeir bentu einnig á að það er ekki ætlað sem móðgun að nefna sníkjudýr eftir einhverjum. Í líffræði er það einfaldlega leið til að heiðra manneskju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×