Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark en fékk fimm sekúndna refsingu fyrir að hindra Hamilton á 48. Hring.
Liðsfélagi Vettel, Charles Leclerc, endaði þriðji og í fyrsta skiptið á árinu nær Ferrari tveimur bílum á verðlaunapall. Það er þó lítil huggun fyrir ítalska liðið sem finnst að dómarar keppninnar hafi stolið af þeim mikilvægum sigri.
Atvikið sem réði úrslitumAtvikið sem hristi vel upp í Formúlu 1 aðdáendum gerðist á 48. hring af 70. Vettel leiddi en Hamilton var búinn að pressa vel á Þjóðverjann síðustu níu hringi.
Augljóst var að Mercedes bíll Hamilton gat farið mun hraðar en Vettel, munurinn á þeim var undir sekúndu hring eftir hring og að lokum gerði Sebastian mistök.
Í þriðju beygju yfirstýrir Ferrari bíll Þjóðverjans sem olli því að Vettel endaði utan vegar. Þegar hann kom inn á brautina hindraði hann Hamilton sem þurfti að bremsa verulega til að klessa ekki á Ferrari bílinn.
Race. Defining. Moment.#CanadianGP#F1pic.twitter.com/053sau3we1Vettel allt annað en sáttur með refsinguna
— Formula 1 (@F1) June 9, 2019

Næstu hringi gerði liðið allt sem það gat til að róa Þjóðverjann en það gekk lítið.
„Ég ætla ekki að róa mig, þetta er ósanngjarnt, ég hef fullan rétt á því að vera reiður, mér er alveg sama hvað fólki finnst,“ sagði Vettel.
„Þú þarft að vera staurblindur til að halda að ég geti farið yfir grasið og haldið stjórn á bílnum á meðan. Ég var heppinn að ég fór ekki á vegginn, hvert í andskotanum átti ég að fara? Þetta er rangur heimur, þetta er ósanngjarnt.“
Vettel hafði ekki hraðan til að koma bilinu í Hamilton í fimm sekúndur og vinna þar með keppnina. Á lokahringjunum reyndi Bretinn meira að segja að komast framúr keppinaut sínum.
Þjóðverjinn brjálaður eftir keppni

Samkvæmt reglum verða þrír efstu ökumennirnir að fara í viðtöl og svo upp á verðlaunapall eftir keppnir. Þetta vissu liðsmenn Ferrari sem á endanum skipuðu honum að fara og að lokum drógu hann upp á verðlaunapallinn.
Áður en að niðurbrotinn Vettel tók við verðlaununum fyrir annað sætið skipti hann út skiltinu fyrir framan bíl Hamilton. Þar stóð að Bretinn hafi sigrað en Vettel setti skiltið sem stóð í stæðinu sem hans bíll átti að vera lagður og setti fyrir framan Mercedes bílinn.
Flestir áhorfendur virtust vera sammála Vettel og Ferrari og var baulað á Hamilton er hann tók við bikarnum á verðlaunapallinum.
Mikil virðing var á milli ökuþóranna sem alls hafa unnið níu heimsmeistaratitla. „Fólkið ætti ekki að baula á Lewis. Það á að baula á þá sem taka þessar ákvarðanir,“ sagði Vettel á verðlaunapallinum. Þá tók Lewis keppinaut sinn með sér upp á efsta þrep verðlaunapallsins.
Það voru ekki bara áhorfendur á brautinni sem voru sammála um að dómurinn hafi verið rangur. „Það er brjálað að ekki sé hægt að keppa lengur, rangt, rangt, rangt,“ sagði Johnny Herbert, blaðamaður á Sky og fyrrum Formúlu 1 ökuþór á samfélagsmiðlum.
Sjónarhorn Hamilton

Lewis sagðist vera sammála dómurunum, sérstaklega eftir að hafa horft á atvikið eftir keppnina. „Ef þessi regla væri ekki þarna hefði ég bara látið hann keyra mig út, það hefði alltaf endað illa.“
Hamilton hefur sjálfur lent í því að koma fyrstur í mark en ekki ná sigri. Það gerðist í belgíska kappakstrinum árið 2008, þá fékk Lewis 25 sekúndna refsingu fyrir að fara út fyrir brautina.
Nú var það Bretinn sem græddi sæti og hefur Hamilton nú unnið fimm af sjö keppnum ársins. Hann hefur nú 29 stiga forskot á liðsfélaga sinn, Valtteri Bottas. Finninn varð að sætta sig við fjórða sætið í Kanada.
Vettel er þriðji í mótinu, 62 stigum frá fyrsta sætinu en á þessum tíma í fyrra leiddi Vettel mótið. Ferrari er nú 123 stigum á eftir Mercedes í keppni bílasmiða.
Ferrari ætlar þó að áfrýja refsingunni og gæti því farið svo að úrslitum keppninnar verði breytt.