Henry tryggði Frökkum sigur í framlengingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júní 2019 21:30 Eugénie Le Sommer og Wendie Renard fagna með Amandine Henry, hetju Frakka. vísir/getty Frakkland er komið í 8-liða úrslit á HM kvenna eftir sigur á Brasilíu, 2-1, í framlengdum leik í Le Havre í kvöld. Amandine Henry skoraði sigurmark franska liðsins á 106. mínútu. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Frakkar komast í 8-liða úrslit á HM kvenna. Þar mætir Frakkland annað hvort heimsmeisturum Bandaríkjanna eða Spáni. Liðin eigast við í Reims á morgun. Valérie Gauvin skoraði eftir rúmlega 20 mínútna leik en markið var dæmt af vegna brots á Barböru, markverði Brasilíu. Að sjálfsögðu kom VARsjáin þar við sögu.Valérie Gauvin fagnar eftir að hafa komið Frökkum yfir.vísir/gettyStaðan var markalaus í hálfleik en á 53. mínútu skoraði Gauvin og að þessu sinni fékk markið að standa. Kadidiatou Diani átti þá sprett upp hægri kantinn og gaf fyrir á Gauvin sem renndi sér á boltann og stýrði honum yfir línuna. Þetta var sjöunda mark hennar í síðustu níu landsleikjum. Skömmu síðar varði Sarah Bouhaddi, markvörður Frakklands, skalla Cristiane í slána. Hún kom hins vegar engum vörnum við þegar Thaisa jafnaði metin á 64. mínútu með góðu vinstri fótar skoti úr vítateignum. Thaisa lék með Grindavík í Pepsi-deild kvenna fyrir tveimur árum. Fleiri urðu mörkin í venjulegum leiktíma ekki og því þurfti að framlengja. Á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingarinnar bjargaði Griedge Mbock Bathy frábærlega á línu frá Debinhu og kom í veg fyrir að Brassar kæmust yfir. Í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar skoraði Henry svo sigurmark Frakka eftir aukaspyrnu Amel Majri, samherja síns hjá Lyon, af hægri kantinum. Lokatölur 2-1, Frakklandi í vil. HM 2019 í Frakklandi