Venesúela tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar með 0-2 sigri á Bólivíu í lokaleik sínum í A-riðli í kvöld.
Venesúelamenn enduðu í 2. sæti riðilsins með fimm stig, tveimur stigum á eftir Brössum sem unnu Perúmenn örugglega í kvöld.
Bólivíumenn eru hins vegar úr leik en þeir töpuðu öllum þremur leikjum sínum í riðlinum.
Darwin Machís skoraði tvö mörk fyrir Venesúela í kvöld. Það fyrra kom strax á 2. mínútu. Machis skallaði þá fyrirgjöf Ronald Hernández í netið. Á 55. mínútu skoraði Machís svo sitt annað mark með skoti í fjærhornið.
Leonel Justiniano minnkaði muninn fyrir Bólivíu á 82. mínútu en fimm mínútum síðar jók Josef Martínez forskot Venesúela aftur í tvö mörk þegar hann skallaði fyrirgjöf Yefersons Soteldo í netið. Lokatölur 1-3, Venesúelamönnum í vil.
