Ástvinir Nashville stjörnu grátbiðja hana að skilja við kærastann Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. júlí 2019 23:49 Hayden Panettierre og Brian Hickerson.
Ættingjar og vinir leikkonunnar Hayden Panettiere, sem er best þekkt fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Nashville, eru sagðir mjög áhyggjufullir vegna sambands hennar við Brian Hickerson, en þau hafa verið saman síðan í ágúst í fyrra. Hickerson hefur nýlega verið ákærður fyrir heimilisofbeldi og sagði heimildarmaður People ættingjar og vinir Hayden grátbæðu hana um að segja skilið við hann. „Vinir hennar og fjölskylda hafa haft áhyggjur af henni í nokkurn tíma og svo virðist sem hlutirnir hafi versnað,“ bætti heimildarmaðurinn við. „Hún þarf að líta inn á við. Af einhverjum ástæðum er hún enn í þessu sambandi en það hefur ekki gert neitt nema að draga hana niður. Þetta er sorgleg staða.“ Hickerson er einnig leikari, en hann er töluvert minna þekktur en Hayden, en sögusagnir um samband þeirra fóru að berast stuttu eftir að staðfest var að Hayden og þáverandi unnusti hennar, Wladimir Klitschko, hefðu skilið. Þau eiga saman fjögurra ára dóttur sem ber nafnið Kaya. „Hayden þarf að umkringja sig mismunandi fólki og ná tökum á bæði einkalífinu og ferlinum sínum,“ sagði heimildarmaðurinn. „Það er erfitt að ímynda sér að aðstæðurnar geti orðið verri en það er möguleiki.“ Kaya hefur að sögn búið hjá föður sínum í Úkraínu frá því að þau Hayden skildu. „Líf hennar hefur tekið miklum breytingum eftir að dóttir hennar flutti til pabba síns og það hafa fleiri vandamál nagað hana síðan,“ sagði heimildamaðurinn. Hickerson var handtekinn vegna heimilisofbeldis 2. maí síðastliðinn en honum var sleppt gegn tryggingu. Saksóknarar segja Hickerson hafa „veitt Hayden P. líkamlega áverka af ásettu ráði.“ Hickerson var ákærður fyrir heimilisofbeldi þann 23. maí en neitaði allri sök. Hickerson á að hafa mætt fyrir dóm í Los Angeles í síðustu viku, samkvæmt RadarOnline, þar sem dómari hlustaði á vitnisburð lögreglumannsins sem mætti á staðinn vegna tilkynningar um heimilisofbeldi þann 2. maí. Á meðan á réttarhöldunum stóð hafnaði dómarinn því að vísa málinu frá og hafnaði einnig beiðni lögmanna Hickerson að ákæran yrði vægari. „Ég skil að hann hefur ekkert sakavottorð en það er eitt sem truflar mig, það er að þetta var ekki fyrsta árásin, sagði dómarinn og ávarpaði lögmenn Hickerson. „Mjög nýlega , áður en þetta gerðist, kom eitthvað fyrir í Púertó Ríkó… og þetta eru áverkarnir á fórnarlambinu. Þetta gerðist tvisvar í þetta skiptið. Það var ekki nóg fyrir hann að valda henni blóðnösum eftir að hann sló hana með opnum lófa… hann fylgdi henni inn í svefnherbergi og þar beitti hann aftur ofbeldi, og olli alvarlegum bólgum og mari á kinninni og hálsi. Í mínum huga sýna sönnunargögnin þrjár mismunandi árásir á fórnarlambið, einu sinni í Púertó Ríkó og tvisvar þetta kvöld… Ég ætla ekki að breyta ákærunni.“ Ef hann verður sakfelldur getur Hickerson átt yfir höfði sér fjögurra ára fangelsisvist. Fjölskylda Hayden sagði við People í síðustu viku „Við vonum að dómarinn taki rétta ákvörðun. Þetta eru mikilvæg skilaboð að senda þegar kemur að heimilisofbeldi.“
Hollywood Mest lesið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Hamilton ætlar ekki að bruna Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Festist í lyftu í New York Lífið Alma stolt af syninum Lífið Drengurinn sem dó Lífið Fleiri fréttir Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Sjá meira