Lífið

Birnir opnar sig um áfengis- og eiturlyfjameðferð

Andri Eysteinsson skrifar
Birnir í 101derland hljóðverinu í miðbæ Reykjavíkur.
Birnir í 101derland hljóðverinu í miðbæ Reykjavíkur. Vísir / Vilhelm
„Mig langaði alltaf geðveikt mikið að vera edrú, ég hataði áfengi og eiturlyf en það er bara einhver fíkill í mér. Þetta var komið á þann stað að ég gat ekki hætt og kunni ekki að hætta,“ segir rapparinn Birnir en fyrr á árinu innritaði rapparinn úr Kópavogi sig inn á meðferðarheimili í Svíþjóð.

„Ég er í ógeðslega góðu jafnvægi. Ég er byrjaður að hugleiða mjög mikið, geri það á hverjum degi,“ segir Birnir sem sigraðist á erfiðleikunum, er edrú í dag og kveðst aldrei hafa verið betri.

Birnir var gestur Bergþórs og Snorra í hlaðvarpinu Skoðanabræður á dögunum og opnaði sig þar um erfiðleikana og dvölina í Svíþjóð.

Birnir Sigurðarson skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 þegar hann gaf út sitt fyrsta lag, Sama Tíma. Ári síðar leit fyrsta plata Birnis dagsins ljós en það var platan Matador sem innihélt lög á borð við Út í geim og Dauður. Birnir hefur þá einnig komið fram á mörgum af vinsælli lögum íslensku tónlistarsenunnar undanfarin ár.

„Það eina í stöðunni var að kyngja stoltinu og fá mér hjálp. Allt í einu var ég bara mættur í meðferð í Svíþjóð í snjónum,“ segir Birnir sem fyrir útgáfu plötunnar Matador sagði í samtali við Vísi að freistingarnar í rappsenunni væru svo margar og áttaði sig á vandanum án þess þó að kalla sig fíkil eða alkóhólista.

Sjá einnig: Birnir gefur út nýja plötu: „Ég nota þetta til þess að halda áfram“

„Ég er ekki alveg edrú, ég drekk bjór af og til, en þetta er ekki jafn mikið vandamál og þetta var, auðvitað er maður smá hræddur að það verði það aftur, en miðað við hvernig hugsunarhátturinn minn er núna þá sé ég ekki fram á að þetta verði að svipuðu vandamáli og þetta var,“ segir Birnir í viðtalinu síðasta sumar.

Aðspurður hvað hafi þurft til þess að ákvörðunin um að fara í meðferð yrði tekin segir Birnir að mikið hafi þurft til. „Ég þurfti svolítið að keyra mig út. Mig langar ekki til að sjá áfengi eða eiturlyf aftur. Ég þurfti bara að fá algjörlega ógeð af þessu, segir Birnir og bætir við að óumflýjanlegt sé að komast í námunda við áfengi verandi rappari en hugarfar hans gagnvart því hafi breyst verulega.

„Það sem ég er búinn að vera að gera, og hvernig ég hef hugsað um lífið. Það er ekki að virka,“ segir Birnir sem segir að á stundum hafi hann drukkið með það að markmiði að það verði enginn botn. „Það er ekkert stopp og ég kann ekki að stoppa“

„Ég var oft einn á djamminu.“ segir Birnir. „Á einhverjum tímapunkti hættir þetta að vera partý. Þetta fer að vera minna og minna gaman og verður bara meira og meira vesen. Þjáning, einmanaleiki, óöryggi og lágt sjálfsmat,“ segir rapparinn Birnir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.