Meiðslalisti Real Madrid lengist enn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2019 14:30 Isco í leiknum á móti Real Valladolid á Santiago Bernabeu um síðustu helgi. Getty/David S. Bustamante
Isco er nýjasta nafnið sem bætist við á langan meiðslalista spænska stórliðsins en óheppnin hefur elt lærisveina Zinedine Zidane í haust. Isco tognaði aftan í læri og missir örugglega af leiknum á móti Villarreal á sunnudaginn. Hann verður væntanlega ekki með spænska landsliðinu í næstu verkefnum.Isco joins the extensive Real Madrid injury listhttps://t.co/5bnVHB81aO — beIN SPORTS USA (@beINSPORTSUSA) August 29, 2019Isco þurfti að fara af velli á 68. mínútu í leiknum á móti Real Valladolid um síðustu helgi en sá leikur endaði með 1-1 jafntefli. Real Madrid sagði að félagið muni fylgjast vel með bata Isco en það er ekki alveg ljóst hversu alvarleg tognunin er. Menn vona það besta enda er hópurinn farinn að þynnast aðeins vegna allra þessara meiðsla. Isco spilaði vinstra megin við Karim Benzema í leiknum um helgina en hægra megin var svo Gareth Bale. Í fyrsta deildarleik tímabilsins, sem vannst 3-1, þá voru þeir Vinícius Júnior, Benzema og Bale sem byrjuðu í framlínunni. Nýi maðurinn Luka Jovic kom inn þegar Isco meiddist í leiknum um helgina en áður hafði Vinícius Júnior komið inn fyrir hinn meidda James Rodriguez. Á meiðslalista Real Madrid eru nú bæði Eden Hazard, Ferland Mendy auk þess sem Marco Asensio sleit krossband á undirbúningstímabilinu og verður ekkert með á leiktíðinni. James Rodriguez er einnig að glíma við kálfameiðsli og þá eru ungur strákarnir Rodrygo Goes og Brahim Diaz líka frá vegna meiðsla.
Spænski boltinn Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira