Lífið

Enn eitt Bachelor parið lét pússa sig saman

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Parið hittist fyrst í þáttaröðinni hennar Rachel Lindsay. Aðdáendur þeirra hafa beðið brúðkaupsins með mikilli eftirvæntingu.
Parið hittist fyrst í þáttaröðinni hennar Rachel Lindsay. Aðdáendur þeirra hafa beðið brúðkaupsins með mikilli eftirvæntingu. Instagram
Fyrrverandi piparjónka ABC sjónvarpsstöðvarinnar Rachel Lindsey giftist Bryan Abasolo í Cancún í Mexíkó í gær.

Parið hittist fyrst í raunveruleikaþáttunum Bachelorette þar sem Rachel var í aðalhlutverki. Þrjátíu karlmenn kepptu um hylli Rachel, lögfræðing frá Dallas, Texas en Rachel valdi að lokum Bryan sem er kírópraktor frá Miami.

Parið hefur búið saman í Miami í Flórída en flutti nýlega aftur til Dallas.

„Rachel var fullkomið dæmi um glæsileika og yndisþokka þegar hún gekk inn kirkjugólfið og að Bryan. Athöfnin einkenndist af mikilli gleði, ást og hlátri,“ sagði Michael Russo sem skipulagði brúðkaupsveislu þeirra hjóna.

„Þegar þau skiptust á handskrifuðum hjúskaparheitum fann maður svo vel fyrir þessum hráu tilfinningum og þeirri öflugu tengingu sem þau hafa sín á milli,“ bætti Russo við.

Hefð hefur skapast fyrir því að fyrrverandi þátttakendur í raunveruleikaþáttunum leyfi aðdáendum sínum að fylgjast með brúðkaupsathöfninni í beinni útsendingu en Rachel vildi það þó ekki og sagði að hún væri að giftast Bryan eingöngu vegna þess að hún elskaði hann. Þau þyrftu hvorki á peningum né frægð að halda á stóra deginum.

Rachel klæddist glæsilegum kjól sem Randi Rahm sérhannaði fyrir hana. Rachel hefur lengi unnið með Rahm sem hannaði marga af kjólunum sem hún klæddist í The Bachelorette. Rachel ræðir um kjólinn í myndskeiðinu hér að neðan.


Tengdar fréttir

Líklegast að flugmaðurinn Peter verði næsti Bachelor

Peter var í þriðja sæti í 15. þáttaröðunni af Bachelorette þar sem hann og þrjátíu aðrir karlmenn kepptu um hylli suðurríkjastúlkunnar Hönnuh Brown, innanhússhönnuð frá Tuscaloosa í Alabama.

Áhorfendur Bachelorette-þáttanna agndofa yfir lygilegum endalokum

Raunveruleikaþættirnir njóta mikilla vinsælda um allan heim en þeir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni ABC. Í næstu viku hefst síðan Bachelor in Paradise sem er eins konar hliðararfurð þáttanna þar sem gamalkunnir þátttakendur fá annað tækifæri til að finna ástina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.