Lífið

Reynslunni ríkari eftir sambandið við Kerr en vill aldrei aftur skilja

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Leikarinn líkti hjónabandi við fjallgöngu. Það sé verkefni sem aldrei megi hætta að vinna að. Bloom kveðst reynslunni ríkari eftir skilnað við fyrisætuna Miröndu Kerr.
Leikarinn líkti hjónabandi við fjallgöngu. Það sé verkefni sem aldrei megi hætta að vinna að. Bloom kveðst reynslunni ríkari eftir skilnað við fyrisætuna Miröndu Kerr.
Breski leikarinn Orlando Bloom, opnaði sig um samband hans og bandarísku söngkonunnar Katy Perry í viðtali í sjónvarpsþættinum Sunday Today. Brot úr viðtalinu hefur verið birt en það verður birt í fullri lengt næsta sunnudag.

Bloom sagði að Perry, unnusta hans, væri afar athyglisverð manneskja. Hann segir að honum sé mjög í mun að þurfa aldrei aftur að skilja.

„Það er mér svo mikilvægt að við séum algjörlega á sömu blaðsíðunni. Ég hef áður verið giftur og síðan fráskilinn og ég vil ekki gera það aftur,“ sagði hinn 42 ára leikari sem er þekktastur fyrir að hafa leikið Legolas í Hringadróttinssögu.

„Við erum bæði mjög meðvituð um það. Hún er svo ótrúleg og ég er alltaf jafn dolfallinn yfir henni.“

Bloom var áður giftur fyrirsætunni Miröndu Kerr í þrjú ár en þau skildu árið 2013. Saman eiga þau hinn átta ára Flynn.

Bloom var áður giftur fyrirsætunni Miröndu Kerr. Saman eiga þau soninn Flynn.Vísir/getty
Perry hefur einnig áður verið gift þó hjónabandið hafi þó ekki reynst langlíft. Hún giftist grínistanum Russell Brand, sem nú hefur helgað tíma sínum andlegum fræðum, á gamlárskvöld á Indlandi árið 2010 en tæpu ári síðar sótti Russell um skilnað.

Bloom og Perry trúlofuðu sig á Valentínusardeginum síðasta en Bloom bað hannar um borð í þyrlu.

„Hún elskar svona stór og mikilvæg augnablik,“ segir Bloom sem segist þó elska mest hið smáa og hversdagslega í lífinu.

„Ég held við séum bæði mjög meðvituð að þetta [tilvonandi hjónaband þeirra] er fjall sem þarf að klífa. Það er verkefni sem fer aldrei frá okkur.“


Tengdar fréttir

Katy Perry raðaði bestu elskhugunum upp eftir styrkleika

Í spjallþættinum Late Late show með Bretanum James Corden er oft á dagskrá liðurinn Spill Your Guts or Fill Your Guts sem gengur út á það að maður á annað hvort að svara erfiðri spurningu eða borða einhvern algjöran viðbjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.