Callum Wilson sá um Everton Arnar Geir Halldórsson skrifar 15. september 2019 14:45 Callum Wilson var munurinn á liðunum vísir/getty Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton þegar liðið heimsótti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Varnarmenn Everton áttu í miklum vandræðum með Callum Wilson í framlínu Bournemouth og kom hann heimamönnum í 1-0 á 23.mínútu. Staðan var þó jöfn í leikhléi því Dominic Calvert Lewin jafnaði metin fyrir Everton á lokamínútu fyrri hálfleiks. Heimamenn voru sterkari í síðari hálfleik og gerðu tvö mörk með stuttu millibili á 67. og 72.mínútu leiksins. Á milli markanna var Gylfa skipt af velli fyrir Moise Kean. Lokatölur 3-1 fyrir Bournemouth og eru bæði lið því með sjö stig eftir fimm leiki. Enski boltinn