Fjallað hefur verið um mál fjögurra fyrrverandi og núverandi starfsmanna Eflingar sem telja félagið hafa brotið á réttindum sínum. Þar á meðal er fyrrverandi skrifstofustjóri sem lét af störfum skömmu eftir að Sólveig tók við.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður fjórmenninganna að honum hafi verið tilkynnt að hann myndi ekki verða áfram skrifstofustjóri á starfsmannafundi, án þess að það hafi sérstaklega verið rætt við hann áður.
Samþykkti að heilsa upp á starfsmenn
Sólveig Anna fjallar meðal annars um þetta í Facebook-færslu hennar og viðurkennir að þar hafi hún gert mistök, mistök sem hún hafi margsinnis beðist afsökunar á. Rekir hún aðdraganda þess sem gerðist á starfsmannafundinum umrædda, sem og hvað átti sér stað á fundinum.Sjá einnig:Efling vísar ásökunum á bug
Segir hún að Sigurður Bessason, þáverandi formaður Eflingar og forveri hennar í starfi hafi þrýst á hana að funda með sér og starfsmönnum Eflingar áður en hún tæki við völdum í félaginu. Á fundum með Sigurði hafi hún tilkynnt honum að hún ætlaði sér að ráða nýjan skrifstofustjóra.
Að lokum var ákveðið að Sólveig Anna kæmi að heilsa upp á starfsmennina. Þegar hún mætti á skrifstofuna var búið að boða til starfsmannafundar. Sólveig ávarpaði starfsmennina.
„Ég kynnti mig, kynnti félaga minn, sagðist hlakka til að koma til starfa og sagði að ég vonaði að við gætum unnið vel saman. Ég sagði að ég myndi „taka með mér“ nýjan skrifstofustjóra. Að þessu loknu stakk Sigurður upp á því að allir viðstaddir kynntu sig,“ skrifar Sólveig.

Segist hafa margbeðið skrifstofustjórann afsökunar
Þegar kom að umræddum skrifstofustjóra að kynna sig tilkynnti hann að með orðum Sólveigar liti hann svo á að honum hefði verið sagt upp fyrir framan alla og að honum hefði aldrei verið sagt frá því að hann yrði ekki áfram skrifstofustjóri.Segir Sólveig Anna að hún hafi í „reynsluleysi“ og „af barnaskap“ talið að Sigurður myndi upplýsa starfsmannastjórann um að Sólveig Anna hyggðist taka með sér nýjan starfsmannastjóra.
„Ég baðst samstundis mikillar og innilegrar afsökunnar og var augljóslega miður mín yfir því að hafa klúðrað þessum fyrsta starfsmannafundi,“ skrifar Sólveig Anna.
Segir hún að hún hafi beðið starfsmannastjórann fyrrverandi afsökunar á þessu fimm sinnum í viðbót, að fyrra bragði. Hún hafi reynt að útskýra málið frá sinni hlið og talið því lokið þegar skrifstofustjórinn rétti fram hendina og sagði málið útrætt, að sögn Sólveigar Önnu.

Skilur ekki af hverju skrifstofustjórinn vill endurskoða samninginn
Þegar Sólveig Anna tók til starfa segir hún að gerður hafi verið starfslokasamningur við skrifstofustjórann, sem hann hafi skrifað undir. Það samkomulag hafi verið að fullu efnt af hálfu Eflingar.Í máli Láru, lögmanns skrifstofustjórans, í frétt Stöðvar 2 í gær kom fram að hann hafi óskað eftir því að samningurinn yrði tekinn upp vegna ákveðinna forsendna sem að urðu, breytingar sem urðu á hans högum sem hann óskaði leiðréttingar á.
Sjá einnig: Segir ákveðna starfsmenn hafa beitt sér gegn öðrum frambjóðandanum um formannssæti Eflingar
Sólveig Anna segist botna lítið í því af hverju skrifstofustjórinn vilji fá nýjan starfslokasamning.
„Til þess að knýja mig til þess að útbúa betri samning hefur hann sent bréf hingað og þangað og fengið Láru V. Júlíusdóttur til að vinna sem einhverskonar innheimtumanneskju fyrir sig. Ég veit ekki hversvegna hann fer fram með þessum hætti,“ skrifar Sólveig Anna.
Segir hún að hún telji sig hafa haft fullan rétt á því að vilja skipta um skrifstofustjóra, sem hafi samþykkt starfslokasamning.
„Ég spyr: Á ég að láta þvinga mig til að gera eitthvað sem er gegn minni betri samvisku, sem lætur mig taka ákvarðanir sem ganga gegn hagsmunum félagsins, þvingar mig til að samþykkja að afhenda fjárhæðir og endursemja um starfslok vegna þess að fólk fer fram með hótunum og árásum? Átti ég að starfa með manni sem mig langaði ekkert að starfa með, vegna þess að hann leit svo á að hann einfaldlega ætti starf skrifstofustjóra Eflingar? Eða mátti ég mögulega líta svo á að ég sem nýr formaður Eflingar, næst stærsta verkalýðsfélags landsins, kjörin með ríflega 80% greiddra atkvæða, hefði eitthvað val, eitthvað frelsi, hefði sjálf eitthvað um það að segja hver væri minn nánasti og dags-daglegi samstarfsfélagi?“
Færslu Sólveigar Önnu má lesa hér.