Fimmtándi deildarsigur Liverpool í röð kom á Brúnni Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2019 17:30 Liverpool fagnar fyrra marki sínu í dag. vísir/getty Liverpool er áfram með fullt hús stiga eftir að liðið vann 2-1 sigur á Chelsea á útivelli í stórleik 6. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsta mark leiksins kom með þrumuskoti á 14. mínútu. Eftir flotta aukaspyrnutaktík þrumaði Trent Alexander-Arnold boltanum efst í markhornið og Kepa Arrizabalaga stóð varnarlaus í markinu. Chelsea virtist vera jafna metin skömmu síðar er Cesar Azpilicueta kom boltanum í netið en eftir skoðun í VARsjánni sást að Mason Mount var rangstæður í aðdraganda marksins og því markið dæmt af.Only two teams have won 15 consecutive games in English top-flight history. Pep Guardiola’s Manchester City Jürgen Klopp’s Liverpool. pic.twitter.com/urxmedmZnh — Coral (@Coral) September 22, 2019 Liverpool skoraði svo annað markið einnig eftir uppsett atriði. Fyrirgjöf Andy Robertson eftir aukaspyrnu endaði beint á kollinum sem stangaði boltann í netið. 2-0 í hálfleik. N'Golo Kante minnkaði muninn fyrir Chelsea á 71. mínútu með laglegu skoti eftir dapran varnarleik Chelsea en nær komust heimamenn ekki og öflugur sigur Liverpool. Þeir eru því með fimm stiga forskot áfram á toppi deildarinnar en Chelsea er í 11. sæti deildarinnar með átta stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti