Tölvupóststækni á snjallsímaöld Oddur Freyr Þorsteinsson skrifar 4. október 2019 10:00 Skýr titill og skipulagður texti auðveldar fólki að átta sig hratt á innihaldi tölvupósts og meta hvort hann sé áríðandi.
Viðskiptavinir endurskoðenda, rétt eins og allir aðrir, nota snjallsíma í síauknum mæli. Það skapar ný tækifæri til markaðssetningar en um leið áskoranir fyrir endurskoðendur, sem þurfa oft að veita flóknar upplýsingar í gegnum tölvupóst. Rithöfundurinn og markaðs- og samskiptasérfræðingurinn Anna Faherty er með góðar ráðleggingar fyrir þá sem vilja skrifa nógu skýrt til að flóknar upplýsingar komist líka til skila á litlum snjallsímaskjá og þær birtust nýlega á vefsíðunni Accountingweb.co.uk. Endurskoðendur nota tölvupóstsamskipti að jafnaði mikið, enda duga þau mjög vel fyrir flestöll samskipti. Tölvupóstar eru líka sífellt meira notaðir til að koma nýjum upplýsingum um fyrirtæki á framfæri eða kynna og auglýsa þau. Auglýsingaherferðir í gegnum tölvupóst og fréttabréf eru mjög áhrifarík tól fyrir mörg fyrirtæki, þar á meðal endurskoðunarstofur. Regluleg samskipti við viðskiptavini í gegnum tölvupóstsendingar skila árangri. Samfélagsmiðlar, vefsíður, blogg, snjallsímaforrit og fréttabréf eru iðulega nýtt vel af fyrirtækjum sem skara fram úr og það verður æ algengara að allt þetta efni sé skoðað í snjallsímum.Leiðir til að vera skýrari Það er því mikilvægt að sinna góðri upplýsingagjöf og hafa snjallsímanotendur í huga þegar texti er skrifaður fyrir viðskiptavini, því þeir lesa textann ekki eins á síma og í borðtölvu. Mun minni skjár getur bæði skert athygli og skilning. Hér eru nokkur ráð sem geta gert það mun auðveldara að koma flóknum upplýsingum til skila í gegnum tölvupóst. Þessar ráðleggingar geta ekki bara gagnast endurskoðendum, heldur eru þetta ágætis ritreglur sem geta nýst vel á ýmsum sviðum. 1. Notið skýra titla. Verið nákvæm, stuttorð og skýr þannig að fólk sé til í að smella á póstinn. Titillinn ætti að gera lesandanum grein fyrir því um hvað skilaboðin snúast og hvort einhverra aðgerða sé þörf. 2. Byrjið á aðalhugmyndunum. Oft sést bara efsti hluti tölvupóstsins þegar hann er fyrst opnaður í síma og það er gott að láta aðalhugmyndirnar koma strax fram svo að lesandinn þurfi ekki að skruna niður í gegnum póstinn til að átta sig á um hvað hann snýst. Svo geta smáatriðin fylgt í kjölfarið. Þannig getur viðtakandinn tekið ákvörðun hratt og auðveldlega um hvort hann vilji bregðast við póstinum strax eða láta það bíða betri tíma. 3. Notið millifyrirsagnir ef tölvupósturinn er langur. Þannig verður auðveldara fyrir viðskiptavini að fara í gegnum póstinn og finna þær upplýsingar sem skipta þá máli. 4. Hafið bæði setningar og efnisgreinar stuttar. Ef setningar eru of langar taka þær nokkrar línur af plássi á skjánum, sem gerir það erfiðara að lesa þær. Munið að setning sem virkar skýr á tölvuskjá getur verið yfirþyrmandi þegar hún er komin á snjallsímaskjá. Á sama hátt gera fleiri málsgreinar textann skýrari og minna fráhrindandi. Byrjið alltaf nýja málsgrein þegar skipt er um viðfangsefni. 5. Notið einföld hugtök eftir fremsta megni til að vera eins skýr og hægt er. Til eru rannsóknir sem sýna fram á að það sé erfiðara að skilja flókinn texta þegar hann er lesinn í síma en á tölvuskjá. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður, en ein er líklega sú að það er erfiðara að renna augunum fram og til baka yfir textann og skerpa á smáatriðum. Því er gott að taka sér tíma til að einfalda eftir besta megni, sérstaklega ef verið er að ræða ný hugtök sem lesandinn þekkir kannski ekki vel. 6. Síðasta ráðið er að gleyma ekki símanum. Það er oft betra að hringja í viðskiptavini ef það þarf að ræða flókna hluti eða fá svar fljótt. Það skilar oft betri árangri á styttri tíma en tölvupósturinn.
Birtist í Fréttablaðinu Tækni Mest lesið Spotify liggur niðri Neytendur Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Viðskipti innlent Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Neytendur Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Viðskipti erlent Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Viðskipti innlent Hækka verð á PS5 í Evrópu vegna „krefjandi“ umhverfis Neytendur Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi Viðskipti erlent „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Hlutabréfaverð í Asíu hækkar Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Prada kaupir Versace á 183 milljarða króna Evrópusambandið frestar tollahækkunum Kauphallir rétta úr kútnum Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Trump-tollar tóku gildi í nótt Bjartara yfir við opnun markaða Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn Leggja til 25 prósent tolla á valdar bandarískar vörur Trump hótar Kínverjum 50 prósenta viðbótartolli Áfram lækkanir við opnun markaða í Evrópu Enn meiri lækkanir í Asíu við opnun markaða Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana Leiðtogar ESB íhuga háa sekt á X og Musk Verðfall á Wall Street Talaði gegn eigin ráðgjöfum um tollana Lækkanir í Asíu halda áfram Bezos sagður hafa boðið í Tiktok Vaktin: Tollar Trump valda usla Tæknirisarnir sjö fengu skell þegar markaðir opnuðu Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Íhuga hærri tolla á alla Sjá meira