Yfirvöld í Kúveit grípa til aðgerða gegn þrælasölum á Instagram Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 2. nóvember 2019 10:18 Fjölmargar konur voru auglýstar á þrælamörkuðum á netinu. skjáskot
Yfirvöld í Kúveit segja að búið sé að boða eigendur nokkurra samfélagsmiðlaaðganga sem notaðir voru til að selja húshjálpir sem þræla. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Rannsókn á vegum fréttastofu BBC Arabic leiddi það í ljós að verið væri að nota snjallforrit, sem Google og Apple veita aðgang að, sem þrælamarkað. Á meðal þessara forrita er Instagram, sem er í eigu Facebook. Konur voru boðnar upp með notkun myllumerkja, líkt og „maids for transfer“ og „maids for sale.“ Yfirvöld segja að þeir sem hafi haft eitthvað með þetta að gera hafi verið látnir taka auglýsingarnar niður. Aðilar að málinu voru einnig látnir skrifa undir samþykkt að þeir myndu ekki taka þátt í þrælasölu aftur. Þá sagði Instagram að tekið hafi verið á vandanum síðan BBC hafði samband við veituna. Búið væri að fjarlægja svipað efni bæði á Facebook og Instagram auk þess sem síðurnar munu hindra að aðgangar verði búnir til sem ætlað er að nota til þrælasölu á veraldarvefnum. Margir aðgangarnir sem voru mest notaðir við kaup og sölu á húshjálpunum virðast ekki lengur virkir.
Kúveit Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira