Matur

Toblerone-jólaterta

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Toblerone jólaterta
Toblerone jólaterta Mynd/Eva Laufey

Nú styttist í hátíðarnar og er kökusnillingurinn Eva Laufey auðvitað byrjuð að gefa hugmyndir af girnilegum uppskriftum. Þessi terta er frábær á veisluborðið en einnig dásamlegur helgarbakstur svo það er algjör óþarfi að bíða fram að jólum með að prófa hana. 

Toblerone marengsterta

Fyrir 8 til 10

Botnar:

  • 4 eggjahvítur
  • 2 dl púðursykur
  • 2 dl sykur

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 110°C.
  2. Setjið bökunarpappír á ofnplötu eða bökunarpappír í botninn

    á tveimur eða þremur 22 cm lausbotna formum og smyrjið hliðarnar með smjöri.
  3. Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykri saman við í smáum skömmtum.

Stífþeytið þar til blandan hreyfist ekki til í skálinni sé henni hvolft.

Skiptið marengsblöndunni á bökunarpappírinn eða í formin og bakið í 1 ½ klst við 110°C.

 

Mynd/Eva Laufey

Toblerone kremið góða

  • 500ml rjómi
  • 2 eggjarauður
  • 4 tsk flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur eða dropar
  • 150 g Toblerone, smátt saxað

Aðferð:  

  1. Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til eggjablandan verður ljós og létt.
  2. Þeytið rjóma og bætið eggjablöndunni varlega saman við rjómann með sleif ásamt vanillu.
  3. Í lokin fer smátt saxað súkkulaði út í rjómablönduna.
  4. Setjið kremið á milli botnanna og ofan á. Skreytið kökuna með ferskum berjum og nokkrum súkkulaðibitum.

Fleiri uppskriftir frá Evu Laufey má finna á síðunni hennar og hér á Vísi


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×